Þau undur og stórmerki gerðust um 8 leytið í morgun að ég fór í gymið, ég sem vakna helst ekki fyrr en korteri áður en ég á að mæta í tíma. Þessi ferð er nú ekki í frásögur færandi nema það að ég verð að segja ykkur frá konunni sem var á hlaupabrettinu við hliðina á mér (það eru sem sagt bara tvö hlaupabretti í íþróttahúsi HÍ). Virtist í fyrstu sín vera mjög eðlileg kona sem var reyndar með rauðar krullur út um allt. Hún var mjög dugleg að hlaupa og tók alltaf rosa spretti inn á milli og ekkert nema gott af því að segja fyrir utan það að hún stundi svo hátt þegar hún var að hlaupa. Mér leið hreinlega illa við hliðina á henni þetta var svo neyðarlegt. Þegar fólk reynir mikið á sig þá andar það hærra en vanalega sem er alveg eðlilegt en þetta voru hreinlega samfarastunur, ég hef bara aldrei lent í öðru eins.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
fimmtudagur, mars 27, 2003
mánudagur, mars 24, 2003
EKKI fara á Maid in Manhattan !!!!! Ég gerði þau mistök á miðvikudaginn var að fara að sjá þessa rómantísku gamanmynd, þvílík klisja með tilheyrandi sinfoníutónlist og væmni. Ég hef mjög gaman af þessari gerð mynda ef vel tekst upp og ég hlakkaði mikið til að sjá þessa sérstaklega þar sem Ralph Fiennes leikur í henni. Ótrúlega fagur maður. Þessi mynd á ekkert sameiginlegt með ,,meistarastykki" á borð við Pretty Woman þar sem öskubuskudraumarnir verða svo sannarlega að veruleika þar sem hinn sjarmerandi milli fellur fyrir óhefluðu vændiskonunni !!!!
þriðjudagur, mars 18, 2003
Jæja þá er ég loksins búin að halda fyrirlesturinn sem ég var náttúrulega á seinustu stundu með :( Ég er ekki mjög ánægð með frammistöðu mína, ég stamaði, roðnaði og var hálf glötuð eitthvað. Ég afspyrnulélegur ræðumaður og þetta er með því erfiðasta sem ég geri. Ég hefði kannski getað verið betur undirbúin. Ég er að vinna í því að setja upp kommentakerfi svo fólk geti nú haft einhverjar skoðanir á því sem ég er að segja. Anna er búin að vera mjög hjálpleg og koma mér aðeins af stað í þessum málum.
föstudagur, mars 07, 2003
Ég tók annað prófið mitt í tækwondó í gærkvöldi og fæ þá gult belti. Það gekk ágætlega held ég fyrir utan það að það tók mig þrjár tilraunir að brjóta spýtuna. Ég þurfti að brjóta spýtu með olnboganum og það gekk sem sagt ekki alveg strax .Eg var orðin ýkt pirruð og fannst ég vera algjör lúði og auli en það tókst sem betur fer í þriðju og síðustu tilrauninni. Nú er ég öll blá og marin á olnboganum. Edda systir var að taka próf fyrir bláa beltið og gekk henni bara mjög vel, hún þurfti að brjóta spýtuna með einhverju svaka hoppsparki og það tókst hjá henni í fyrstu tilraun. Ég hlakka til að fá gula beltið í hendurnar, það verður miklu flottara að vera komin með lit um mittið, núna er ég sem sagt með hvítt belti með gulri rönd. Jæja þá í þetta sinn þér er heimil ólin en hvenær koma kæri minn kakan þín og jólin.
fimmtudagur, mars 06, 2003
Smá lúðaskapur í byrjun :( Af einhverjum ástæðum kom það sem ég skrifaði inn í gær tvisvar sinnum, frekar glatað. Þið verðið bara að afsaka þetta, von bráðar verður þetta fullkomnasta og besta bloggsíða sem þið hafið séð. Anna ég þarf að koma í kennslustund til þín, þú ert svo klár í þessu.
miðvikudagur, mars 05, 2003
[3/5/2003 1:00:27 PM | Svala Magnusdottir]
Jæja þá er ég loksins búin að búa til bloggsíðu, maður má nú ekki vera minni maður en aðrir. Ég hef nú strax eitthvað að tjá mig yfir (eða réttara sagt pirrast yfir). Þannig er mál með vexti að ég fór í bankann í morgunn til þess að ná í nýja debetkortið mitt og þar þurfti ég að bíða meðan krakkaskarinn söng fyrir nammi, ég missti þolinmæðina fljótt. Þegar ég loksins komst að og fékk kortið mitt þá horfði konan á mig og skoðaði kortið og sagði svo " ég hélt að þetta væri strákur á myndinni". Ég horfði bara forviða á hana og sagði svo "þakka þér kærlega fyrir" og var mjög fúl á móti. Hvað er málið segi ég nú bara gat hún ekki beðið þangað til ég var farin og sagt svo við samstarfsmenn sína "guð hún var eins og strákur á debetkortamyndinni sinni" í staðin fyrir að segja þetta við mig. Nú á ég eftir að skammast mín í hvert skipti sem ég borga með þessu korti, það er spurning um að fara bara að nota hraðbankana.