Ohhhhhhhhhh þá er komið að einum leiðinlegasta tíma ársins, PRÓFTÍMI. Ég er að kafna hérna yfir bókunum, það er greinilegt að ég er komin með meira en nóg af lærdómi. Það gleðilega er þó að þetta eru síðustu prófin sem ég mun taka JIBBÍ. Seinasta helgi var tekin með trompi enda síðasti séns fyrir próflesturinn. Á föstudagskvöldið fór ég í smá partý hjá Önnu K og var skellt í sig heilli hvítvínsflösku þar og var ég orðin vel hress þegar við komum niður í bæ. Við fórum á sirkus og síðan á 22 (aldrei gert það áður). Ég var komin heim til mín um hálf 5 og fékk þá þessa gríðarlegu þörf fyrir að elda e-ð og fékk mér ljúffengar pakkanúðlur þar sem ekkert annað var til á heimilinu. Á laugardeginum drattaðist ég drepþunn upp í Breiðholt til þess að horfa á Eddu systur keppa í Taekwondó. Hún fékk svo ekki að keppa greyið þar sem mótinu var frestað vegna slyss á einum keppandanum. Um kvöldið hittust svo allir sem æfa Taekwondó í Ármanni og fórum við að borða á pizza 67 og svo var haldið yfir á Gaukinn þar sem hafði verið splæst í bjórkút. Það var rosastuð og allir hressir en ég var nú bara róleg í tíðinni og fór heim um 2 leytið, ég þurfti nefnilega að fara að vinna á sunnudagsmorguninn. Fúlt. Þá eru framundan 3 ,,skemmtilegar" vikur þar sem ég verð lokuð inni við lestur og best að drífa sig og hefjast handa.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
þriðjudagur, apríl 15, 2003
þriðjudagur, apríl 08, 2003
Eins og þið sjáið þá er ég blogglúði, tekst einhvern veginn að láta sama textann koma tvisvar sinnum. Þetta átti ekki að gerast en ég er að læra, þetta kemur allt með kalada vatninu. Allaveganan þá kom ég heim frá Barcelona í gærkvöldi. Ferðin var frábær og Barcelona er æðisleg borg, ég féll alveg fyrir henni. Það var rosalega gaman að hitta Sólveigu, Ingimar, Sindra og Andreu. Sindri er 4 ára og búinn að vera 2 vetur í skóla og talar spænskuna reiprennandi, rosalega krúttlegt að heyra hann tala. Andrea er líka algjört æði, orðin 8 mánaða og er alltaf skríkjandi og hlæjandi. Á föstudaginn þá lék ég túrista og fór í túristabussinn sem fer á alla helstu staðina og ég sá kirkjuna frægu, Gaudi byggingarnar, fór í Gaudi garðinn og Mírósafnið. Á laugardaginn fór ég í smá verslunarleiðangur sem er nauðsynlegt í hverri utanlandsferð :) Um kvöldið fórum við á tangó show sem var alveg rosalega flott, dansararnir voru mjög færir og tónlistin mjög flott. Á sunnudaginn fórum við svo til Sitges sem er fyrir sunnan borgina og er mjög fallegur lítill strandbær. Við fengum alveg frábært veður og lágum í sól og blíðu á ströndinni, ég fékk meira að segja smá lit í framan.
þriðjudagur, apríl 01, 2003
Ég er að fara til Barcelona ekki á morgun heldur hinn og ég er að deyja úr spenningi :) Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer til Spánar og ég hlýt að vera í minnihluta hér á landi þar sem ég hef ekki farið í þessar týpísku sólarlandaferðir til Mallorca og Benidorm o.fl. Það verður gott að skreppa aðeins út fyrir landsteinana og hlaða batteríin fyrir próflesturinn. Það má geta þess að þetta verður seinasta prófatörnin á ferlinum :) :) :) :)
Ég er að fara til Barcelona ekki á morgun heldur hinn og ég er að deyja úr spenningi :) Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer til Spánar og ég hlýt að vera í minnihluta hér á landi þar sem ég hef ekki farið í þessar týpísku sólarlandaferðir til Mallorca og Benidorm o.fl. Það verður gott að skreppa aðeins út fyrir landsteinana og hlaða batteríin fyrir próflesturinn.
