Ég er búin að fá skammir fyrir að vera latur bloggari svo að það er best að ég skrifi eitthvað :) Núna er ég að pakka öllu niður í kassa, ég flyt nefnilega til hennar ömmu minnar í Drápuhlíð á laugardaginn. Djöfull er leiðinlegt að pakka, endalaust hvað leynist mikið drasl hjá manni og ekki bý ég nú á mörgum fermetrum. Svo er náttúrulega komið að aðalmálinu á laugardaginn EUROVISION jibbí. Ég verð að vinna til 9 á laugardagskvöldið og missi af sjálfri keppninni, súrt súrara súrast. Ef ég er heppin og nógu fljót að koma mér í júróvisjón partýið hjá Örnu þá ætti ég að ná stigakeppninni (ég vona það). Ég spái því að Birgitta verði í 5-10 sæti, þykjólessurnar í TATU eiga örugglega eftir að vinna þetta. Ásamt því að halda með Íslandi þá ætla ég líka að halda með Úkraínu, gaurinn sem singur það er mesta væmnisklígja sem ég hef séð lengi hann er verri en Daniel Bedingfield (eða hvað sem hann heitir nú aftur) svei mér þá og það er sko erfitt. Þessi gaur er sko góður kandítat í núll stigin.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
fimmtudagur, maí 22, 2003
mánudagur, maí 12, 2003
Það var mikill sorgardagur á mínu heimili í gær. Hún Dísa litla hamsturinn minn dó :( Ég og Edda héldum jarðarför í garðinum hjá ömmu og grófum hana í litlum ilmvatnskassa.
Dagurinn í gær var líka mikill þynnkudagur, fór í kosningapartý til Hrafns, fórum í bæinn upp úr eitt og ég var ekki komin heim fyrr en um 7 leytið í gærmorgunn. Ég labbaði heim í sól og blíðu, ég held maður sé eitthvað belaður að vera að svona lengi. Mætti svo í vinnu kl þrjú, frekar mygluð skal ég segja ykkur.
fimmtudagur, maí 08, 2003
ÉG ER BÚIN Í PRÓFUNUM :o) :o) :o) :o) og ég þarf aldrei aftur að taka próf á ævinni. Á mánudaginn fer ég að vinna við lokaverkefnið og verður það vinnan mín í sumar. Nú verður allt sett á fullt þar sem ég verð að vera búin með verkefnið fyrir 1. ágúst. Ég var nefnilega að ráða mig í vinnu frá 1.ágúst í Lyf og heilsu á Akranesi, skrifaði undir samning og allt í gær :o) Það er skrýtin tilfinning að vera að klára skólann og fara út á vinnumarkaðinn, maður er nú búinn að eiga það náðugt seinustu árin. Þótt maður eigi eftir að sakna skólans þá á ég sko alls ekki eftir að sakna skýrslugerða og prófa (vibbar).
sunnudagur, maí 04, 2003
Ég er ennþá í prófum og hef ekkert að skrifa um, ég hangi bara heima hjá mér og les. Mér til mikillar gleði þá er ég að fara í SÍÐASTA prófið á ferlinum á þriðjudaginn, ótrúlegt að þetta nám sé að taka enda. Ef einhver á tímavél þá vil ég gjarnan fá hana lánaða og spóla áfram þangað til í október en þá verð ég búin með lokaverkefnið og mun útskrifast jibbíjei. Ég er sem sagt orðin óþreyjufull og vildi helst að þetta væri allt saman afstaðið.
