Myndir úr partýinu má sjá á linknum Eyþór.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
mánudagur, júní 23, 2003
Þá er helgin búin og enn ein vikan að byrja og ekki laust við það að maður sé þreyttur eftir átök helgarinnar. Ég fór nefnilega á laugardaginn í skemmtilegasta partý sem ég hef farið lengi í. Bekkjarsystur mínar voru að útskrifast úr lyfjafræðinni og var haldið sameiginlegt partý í sal í Borgartúni og það var líka svona meiriháttar gaman þar. Fyrst fór ég í veislu hjá Þórey og svo var haldið niður í Borgartún um 9 leytið. Brjálað stuð og gleði. Ég var í salnum til svona hálfþrjú en það var ekki hægt að fara heim svo að ég var samferða einhverjum strák niður í bæ og hitti Fanney á Thorvaldsen bar (fíla þann stað ekki). Við fórum svo á Hverfisbarinn þar sem ég hitti Eddu systur og vinkonur hennar í röðinni og þar dönsuðum við langt fram á morgun. Ég var ekki komin heim fyrr en um 6 leytið. Mætti svo í vinnu kl 3 og ég var frekar þreytt. Mæli ekki með því að vinna eftir djamm. Nú er komið að djammpásu í bili, næstu helgi ætla ég bara upp í Borgó og slaka á og jafnvel skrifa eitthvað í ritgerðinni minni.
miðvikudagur, júní 18, 2003
Ýmislegt skemmtilegt hefur gerst síðan ég skrifaði síðast og það sem ber hæst að mínu mati átti sér stað á laugardaginn síðastliðinn. Ég Anna Katrín og Valdís unnum það þrekvirki að labba leggjarbrjót og var það hvorki meira né minna en 7 tíma göngutúr. Fyrir þá sem ekki vita liggur leggjabrjótur milli Botnsdals í Hvalfirði og Þingvalla. Við hófum ferð okkar á Þingvöllum og enduðum inn í Hvalfirði. Þetta var mjög skemmtilegt en erfitt, ég var gjörsamlega búin í löppunum í lokin en eins og nafnið á leiðinni gefur til kynna er leiðin mjög grýtt og reynir á. Eftir þetta gerði ég mér lítið fyrir og skellti mér í vinnupartý (með vinnufélögunum í Hringbrautarapóteki) og kom ekki heim fyrr en hálfsex á sunnudagsmorguninn. Það er sem sagt fyrst í dag sem að ég er nokkurn vegin búin að ná mér, ég var algjörlega úrvinda sunnudag og mánudag og heldur slöpp í gær. Svona gerist þegar maður ofmetur sjálfan sig ;) Aðra helgina í júlí er stefnan sett á Fimmvörðuháls svo að þetta var ágætisundirbúningur fyrir þá leið. Annars er lítið annað að frétta af mér í bili, ég eyði tímanum í að drepa krabbameinsfrumur fyrir hádegi og í heimildaleit og ritgerðarsmíð eftir hádegi. ÖFUNDIÐ ÞIÐ MIG EKKI !!!!!
mánudagur, júní 02, 2003
Ég er alltof löt við að skrifa þetta gengur ekki lengur. Núna er ég út í Haga að tölvast, er í heimildaleit ásamt því að hangsa á netinu. Er að fara eftir hádegi upp í krabbameinsfélag og er að fara að fylgjast með, ég á nefnilega að prófa plöntuna mína á brjóstakrabbameinsfrumum og athuga hver áhrifin verða. Ég fer að fylgjast með í dag af því ég hef ekki hugmynd um hvernig á að vinna með frumur og ég er því svoldið stressuð :(
Ég hékk upp í Borgó alla helgina og hafði það mjög gott og er alveg endurnærð fyrir vikuna, ágætt svona til tilbreytingar að vera ekki hálf þunnur á mánudegi ;)
