fimmtudagur, júlí 31, 2003

Ég verð bara að fá að tjá mig aðeins um útvarpsmenn, ég held það sé mest pirrandi fólk í heimi. Þessa dagana hlusta ég mikið á útvarpið þar sem að ég er föst inn á rannsóknarstofu allan daginn, það léttir lífið að hafa smá tónlist þegar maður er einn allan daginn. Ég er búin að komast að því að X-ið er eina útvarpsstöðin sem ég get haft á allan daginn, strákarnir sem vinna þar eru ekki pirrandi og tala mjög lítið. Tónlistin er ekki alltaf við mitt hæfi en frekar hlusta ég á leiðinlegt lag en leiðinlegan útvarpsmann. Stundum hef ég reynt að hafa Létt á því að lögin þar eru alveg ágæt (fyrir utan beyglur eins og Celine Dion og Shania Twain) en guð minn góður hvað þær eru leiðinlegar gellurnar sem vinna þar. Sérstaklega Hulda Bjarna, um leið og hún opnar munninn fæ ég grænar (það sama gildir líka um Anastasiu sem er ÖMURLEG). Svo er þetta lið alltaf að tala um ekki neitt, mætti stundum halda að það hefði baun þarna uppi. Ekki má heldur gleyma klígjugæjunum sem eru á FM og Lísu Páls á Rás 2.
Jæja þá er ég búin að fá smá útrás, ég held ég sé búin að vera ein allt of lengi, ætli ég sé ekki farin að klikkast af öllum þessum leysum sem ég er að vinna með. Þið megið endilega koma með komment, mér líður betur ef það er einhver þarna úti sem getur látið svona hluti pirra sig :)

Ef einhver veit hvernig ég get sett upp myndasíðu hér á blogginu þá má sá hinn sami gefa sig fram og leiðbeina mér, ég yrði mjög þakklát.

Verð bara að mæla með einni mynd sem ég sá í bíó í gær. Ég fór með Önnu K og Kötu á How to lose a guy in 10 days á sérstökum stelpudögum í bíó (kostaði bara 300 kall). Ég verð að viðurkenna það að ég var með fordóma fyrirfram en þeir hurfu fljótlega. Ég hef ekki hlegið svona mikið í bíó síðan ég veit ekki hvenær. Maður gjörsamlega grenjaði úr hlátri 2/3 hluta myndarinnar. Meira að segja endirinn var ekki of klígjulegur en náttúrulega smávegis eins og búast mátti við. Ekki skemmir hann Matthew McConaughey fyrir, hann er sko foli dauðans.

þriðjudagur, júlí 29, 2003

Jæja held að sé kominn tími til að skrifa smávegis hér. Ég mótmæli hér með því að tíminn skuli líða svona hratt, það er bara allt í einu að koma að verslunarmannahelginni. Nú fer að líða að lokum í verkefninu hjá mér, það er svoldið stress núna að reyna að komast yfir sem mest áður en ég hætti í verklega hlutanum. Svo er bara að hella sér í að skrifa ritgerðina sem verður ekki lítið mál, það verður sko léttir þegar það er búið.
Það er ýmislegt búið að gerast hjá mér síðan síðast. Það sem stendur upp úr er önnur helgin í júlí en þá fórum við vinirnir yfir fimmvörðuháls. Gangan tók okkur tæpa 10 tíma og var veðrið misgott á leiðinni en það spillti ekki fyrir því þetta er alveg einstaklega falleg gönguleið. Þetta var töluvert púl, mikið upp á móti fyrri helming leiðarinnar og vorum við orðin þreytt þegar við komum niður í Bása. Þar var svo grillað og drukkin bjór en eins og gefur að skilja entumst við nú ekki lengi ;)
Næstu helgi var svo brjálað djamm í hitabylgjunni sem gekk þá yfir. Fór í partý til Önnu Katrínar og fórum við svo á Vegamót og enduðum á Sirkus. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt djamm en samt svoldið mikið fyllerí. Mikil þynnka daginn eftir.
Mín verslunarmannahelgi verður að öllum líkindum alveg djammlaus, stefni á að fara með fjölskyldunni í ferð út á Vestfirði. Ég hef aldrei komið þangað svo að ég er frekar spennt.
Hún Edda systir mín á afmæli í dag er orðin 22 ára, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ EDDA!!!.

fimmtudagur, júlí 10, 2003

Ég hef aldeilis verið löt er ekki búin að skrifa neitt síðan 23. júní, uss uss uss. Ég er ennþá á kafi í verkefninu mínu og náði þeim frábæra áfanga í gær að klára frumuprófarninar, jibbí. Þær eru búnar að taka mánuð og ég er búin að gera 30 eins tilraunir. Núna er ég aftur komin upp í Haga og verð þar þangað til ég klára.
Síðastliðinn laugardag fór ég í brúðkaup upp í Borgarfirði og var það haldið úti í blíðskaðar veðri. Þau sem voru að láta pússa sig saman heita Embla og Klaus. Hana Emblu er ég búin að þekkja síðan ég var 3ja ára og eru foreldar okkar vinir. Hef reyndar ekki haft mikið samband við hana síðan við vorum krakkar en hef hitt hana af og til og það var rosalega gaman að fara í brúðkaup hjá henni. Hún lærði á Hawai og var að giftast dönskum manni svo að það var fólk alls staðar að úr heiminum. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og mikið fjör.
Næstu helgi ætla ég að gerast göngugarpur á ný og rölta yfir Fimmvörðuháls. Við erum að fara 7 saman, ég, Edda, Anna Katrín, Ólöf, Hrafn, Kata og Magga. Þetta verður örugglega mjög gaman og ég hlakka mikið til.