Ég sit enn föst við skriftir og er að reyna að tapa ekki geðheilsunni. Ég verð laus úr prísundinni eftir u.þ.b. 3 vikur og þá get ég hætt að vorkenna sjálfri mér.
Fór á Foo fighters á þriðjudaginn með Eddu, Val, Önnu Sig, Önnu K og Valdísi. Það var alveg meiriháttar gaman, þeir eru ekkert smá skemmtilegir og ekki skemmir fyrir hversu sætur Dave Grohl söngvari er. Við vorum náttúrulega eins og sannir rokkarar og tróðum okkur eins framarlega og við komumst og hoppuðum þar í kremju og 200 stiga hita í 4 lög en svo var úthaldið búið. Þvílík átök, troðningsúthaldið hefur nú eitthvað minnkað með árunum held ég.
Nafnavenjur á Akranesi: Hlini, Hjálmur, Alfa.
Pirringur vikunnar: útlendingar á þjóðveginum sem keyra á 70, rosalega er ég orðin þreytt á þessu liði sem að er bara að dóla sér eins og það sé á einhverjum sveitavegi, urrrrr. Þeim fer nú óðum fækkandi þegar fer að líða á haustið, sem betur fer.
Svala er alls ekkert pirraður ökumaður né pirruð manneskja yfir höfuð.
