föstudagur, október 31, 2003

Ahhh föstudagskvöld, vinnuvikan er búin og Idolið að fara að byrja.

Ég er búin að vera að jafna mig alla vikuna eftir húllumhæið síðustu helgi. Á laugardaginn síðasta útskrifaðist ég og var haldin svaka veisla heima hjá m&p upp í Borgó. Það var rosalega gaman og allir skemmtu sér mjög vel. Það var vel mætt í veisluna og hreint og beint mikið stuð og auðvitað mikil vínsmökkun í gangi. Eftir veisluna fór um helmingur veislugestanna í rútu í bæinn og var mikið sungið á leiðinni. Stutt pissustopp var í Esjuhlíðum og svo var haldið beinustu leið niðri bæ og á Vegamót. Seinna um kvöldið splúndraðist hópurinn og fólk entist mislengi ;) Ég held að ég og Anna Katrín höfum dugað lengst og vorum á Sirkust þangað til snemma um morguninn. Á sunnudeginum var svo ein mesta þynnka sem ég hef kynnst lengi og gat ég mig ekki hreyft fyrr en um 5 leytið og ég er varla búin að jafna mig enn. Ég er rosalega ánægð með útskriftardaginn og kvöldið, ég held þetta hefði ekki getað heppnast betur.

Ég fekk náttúrulega fullt af fínum gjöfum eins og t.d. tvö mortel sem eru nauðsynleg hverjum lyfjafræðingi og margt margt fleira. Ég fekk líka ljósmyndir af sjálfri mér síðan ég var tveggja ára og mamma hafði grafið upp á ljósmyndastofunni og látið endurgera. Góð hugmynd mamma !!

Þið sem komuð í veisluna, takk fyrir mig þetta var frábært :)

laugardagur, október 11, 2003

Rosalega er ég löt að blogga. Í dag eru tvær vikur í útskriftina mína og ég er orðin ansi spennt. Þetta verður svaka partý upp í Borgó með rútuferð úr bænum og alles. Ég vonast til þess að það verði mikið húllumhæ og sem flestir endi í bænum á djamminu.
Núna er ég ekki að horfa á landsleik Íslands og Þýskalands, bæði finnst mér fótbolti frekar boring og ef ég fer að fylgjast með leiknum þá veit ég að ég spring úr æsingi og verð fúl það sem eftir er kvöldsins því Íslendingar gátu ekki unnið Þjóðverja. Eins og það sé sjálfsagt mál að það gæti gerst því að við erum nú eftir allt saman milljóna þjóð, allavegana svona inn við beinið.