Jæja þá er ég loksins búin að finna mér íbúð :) :) :) Ég er búin að festa mér íbúð í Garðabænum hvorki meira né minna. Þar er verið að byggja nýtt hverfi niður við sjóinn sem heitir Sjáland og er íbúðin mín við Strandveg 18. Þetta er 2ja herb. íbúð á 2.hæð með suðursvölum, hún er 64 fm og er þvottahús inni í íbúðinni. Hún skilast fullfrágengin án gólfefna í ágúst, það fylgja samt flísar á baðherberginu og í þvottahúsinu. Ég er bara mjög spennt, það verður gaman að flytja inn í allt nýtt. Ég hafði ætlað mér að vera í vesturbænum eða miðbænum en svo sá ég þessa og leist bara vel á staðinn. Ég bjóst satt að segja ekki við að fá íbúðina, það var einhver annar búinn að gera tilboð og þessar íbúðir eru víst að renna út en ég var greinilega með betra tilboð. Nú er bara að vera duglegur og safna og safna þangað til í ágúst.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
laugardagur, janúar 31, 2004
miðvikudagur, janúar 21, 2004
Loksins, loksins kom að því !!!!!!!!! Ég drullaði mér í þrek í gær, fór með pabba og Val út í íþróttahús Borgarness. Mikið var gott að hreyfa sig aftur ég var orðin að algjöru dauðyfli, nennti ekki neinu. En vonandi eru nýir og breyttir tímar framundan, ég verð ofuraktíf íþróttakona (hmm mjög líklegt).
föstudagur, janúar 16, 2004
Þá er ég loksins komin heil og höldnu heim úr vinnunni eftir lífshættulega færð. Það er snjókoma og mikið fjúk en skyggnið og færðin var ágæt þangað til ég kom að Hafnarfjallinu, þá hætti mér að lítast á blikuna. Það sást hreinlega ekki á milli stika og ég þurfti að giska hvernig vegurinn lá. Maður lendir ekki í svona hrakningum í Reykjavík, djöfull hlakka ég til að flytja aftur þangað.
Ég er komin með nýtt myndaalbúm á netið og er búin að uppfæra linkinn hjá mér, endilega kíkið á þarna eru m.a. myndir úr útskriftarveislunni minni og ameríkuferðinni.
miðvikudagur, janúar 14, 2004
Uhmmm jæja þá er bara komið nýtt ár og ég hef ekki sagt múkk á þessari síðu í 2 mánuði. Nú verður maður að fara að gera eitthvað í því og vera kreatífur bloggari.
Ég er ekki hress með sjónvarp allra landsmanna í kvöld, BEIN ÚTSENDING FRÁ ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNUNUM urrrr!!! og ég sem var búin að hlakka til að koma heim úr vinnunni, borða og horfa svo á bráðavaktina. Mér er alveg sama hver vinnur verðlaun á þessari hátíð, finnst þetta eitthvað svo tilgerðarlegt og halló.
Þessa dagana er ég á fullu í íbúðaleit og vonandi finn ég þá réttu innan tíðar. Ef einhver rekst á skemmtilega íbúð sem myndi henta mér þá endilega benda mér á það :)
