Þá er komið enn eitt föstudagskvöld, einhvern veginn finnst mér alltaf vera helgi og tíminn líður alveg fáránlega hratt. Voru jólin ekki um daginn eða? Svo er allt í einu að koma mars og áður en maður veit af er komið sumar. Ég er mest hrædd um að ég verði orðin þrítug áður en ég veit af. Nú er stefnan að hætta að hugsa um hversu hratt tíminn líður og sérstaklega að HÆTTA að hugsa um hversu gömul ég er orðin. Satt að segja er ég heldur ung til þess að vera að hugsa svona. Hvað segið þið jafnaldrar mínir eru fleiri með svona ,,ohh ég verð orðin gömul áður en ég veit af" hugsanir?
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
föstudagur, febrúar 27, 2004
mánudagur, febrúar 23, 2004
Já það er ekki hægt að segja annað en að maður kann að detta ærlega í það við og við. Fór í partý til Hrafns á laugardagskvöldið og það var svaka stuð. Við fórum svo á Ölstofuna, því næst og 22 og svo á Celtic Cross. Við ætluðum sem sagt að fara á Hverfisbarinn en þar var svo mikil röð að við fórum bara hinum megin við götuna. Það seinasta sem ég man skýrt er að hitta Siggu, Maju og Elsu St. bekkjarsystur mínar fyrir utan Hverfisbarinn svo er afgangurinn af kvöldinu eins og slide show. Eftir Celtic Cross fór ég víst á Hverfisbarinn og hitti Ingu Lilý en ég man bara ekkert eftir því. Svo fór kvöldið í enn meira rugl með tilheyrandi móral á sunnudaginn. Já þetta eldist greinilega ekki af manni, maður er svona helvíti tæpur stundum.
En það þýðir ekki að velta sér upp úr þessu endalaust maður tekur því bara rólega í einhvern tíma og passar sig svo vonandi næst ;)
föstudagur, febrúar 20, 2004
Hún Anna Sigurðar vinkona mín er búin að redda málunum, það er komið kommentakerfi. Takk Anna mín ég er rosalega glöð.
Þetta átti nú að vera idiotprúf dæmi en hún Svala er ekki bloggari af guðs náð, kann engin svona bloggaratrix.
Ég vil líka benda á að Evrópukortið hérna fyrir neðan er vitlaust, ég gleymdi að haka við Holland. Prósentutalan hækkar þá í 29%. Mér finnst vera komin tími til að ég ferðist til Austur-Evrópu, mig langar alveg sérstaklega til Prag og Búdapest og svo held ég að það væri gaman að koma til Moskvu.
Ekki hefur mér tekist enn að laga þetta blessaða kommentakerfi, djö.
Annars er ég búin að bóka flug til Köben í apríl, jibbí ég hlakka ekkert smá til. Ég fer föstudaginn 2.apríl og kem heim á mánudeginum 5. Er að fara að heimsækja hana Önnu Katrínu vinkonu mína sem er í námi þarna ásamt Gaddafi Jr. og fleiri.
Hér kemur eitt sniðugt, það er hægt að búa sér til kort af Evrópu þar sem sést hvaða lönd maður hefur heimsótt. Ég hef bara farið víðar en ég hélt, hef heimsótt 27 % af Evrópu:
create your personalized map of europe
or write about it on the open travel guide
