Ætli það sé ekki best að skrifa nokkrar línur, það er búið að vera eitthvað tuð um að ég sé ekki nógu dugleg. Ég vil mótmæla þessu, mér finnst ég bara mjög dugleg þótt ég sé ekki að tjá mig hérna á hverjum degi.
3 DAGAR Í BROTTFÖR JIBBÍ !!!!!!! Eftir 3 daga verð ég komin til kóngsins Köbenhávn og spenningurinn magnast með hverjum deginum. Það verðju nú næs, Magga vinkona ætlar að koma yfir frá Jótlandi og Hrafn ákvað á síðustu stundu að skella líka út þannig að það verður hópferð til Köben. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ég á eftir að kíkja inn í H&M búðina á strikinu ;)
Anna Sig er loksins byrjuð aftur að blogga og ég hvet ykkur til að kíkja þar inn, bendi sérstaklega á Færeyja linkinn, frekar fyndið.
Að lokum ætla ég að monta mig af því að ég fór í þrek í gærmorgun og í morgun, ég er ekkert smá dugleg, vakna fyrir kl
sjö á morgnana og allt. Er á meðan er og ég ætla að monta mig eins og ég get á meðan.
