mánudagur, apríl 26, 2004

Mánudagur og annar í þynnku, þoli ekki slíka daga.
Annars var helgin mjög skemmtileg hjá mér, byrjaði hana snemma með því að fara á tónleika með Violent Femmes á fimmtudagskvöldið. Þeir voru frábærir og ég skemmti mér rosalega vel. Fór með Valdísi, Jóa og Hrafni. Á föstudagskvöldið hittumst við spatúlurnar og horfðum á Ungfrú Reykjavík með tilheyrandi veðmáli og aðfinnslum á bæði kynnum og keppendum. Þetta er nú meira hallæris sjóið, ég segi nú ekki annað. Ég veðjaði þó á rétta snót en var ekki ein um vinningspottin því Sigga og Elsa Steinunn veðjuðu á þá sömu en ég fékk heila 5 bjóra í verðlaun og sporðrenndi þeim öllum á laugardagskvöldinu. Ég og Anna Sig vorum bara tvær heima hjá henni að djúsa og hlusta á slagara. Hrafn kíkti svo við og við vorum farin að stíga trylltan dans á stofugólfinu hjá Önnu áður en við héldum í bæinn. Fórum á Hverfisbarinn þar sem var drukkið og dansað fram undir morgun. Þetta var þokkalega mikið fyllerí en ekkert minnisleysi þó, sem betur fer. Hegðaði mér betur en oft áður ;)
Nú er bara um að gera og fara að undirbúa sig fyrir næstu helgi en þá er ÁRSHÁTÍÐ SPATÚLANNA og grunar mig að það geti orðið ansi mikið fyllerí. Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar um að ég ætli að passa mig og vera rosa stabíl því þá endar það bara á einn veg, illa.

mánudagur, apríl 19, 2004

ÉG ER ÓSJÁLFBJARGA KVENMAÐUR!!!!

Svona einhvern veginn upplifði ég sjálfan mig á leiðinni í vinnuna í morgun. Ég var búin að drössla mér upp úr rúminu fyrir 7 og lagði af stað upp úr 7 til að geta farið í ræktina áður en ég færi í vinnuna. En hvað haldiði að gerist þegar ég er rétt komin fram hjá Hafnarfjallinu, SPRINGUR Á HELVÍTIS BÍLNUM. Ég reyndi að koma bílnum eins langt út í kant og ég mögulega gat og svo hugsaði ég bara "hvað á ég að gera ???? ég kann ekki að skipta um dekk á þessum djöfulsins bíl". Ég drattaðist út til að tékka á málunum og úti var skítakuldi og örugglega 100 m/s. Finn tjakkinn og varadekkið og lít undir bílin en hafði bara ekki hugmynd um hvar ég átti að setja tjakkinn. Hringdi í pabba og var bara paaaaabbbbiiiii hjáááálp, hann ýkt pirraður ennþá sofandi og sagði að ég ætti bara að gera þetta sjálf. Það endaði með því að nágranni okkar sem vinnur á verkstæðinu hjá Vegagerðinni kom og aðstoðaði mig. Ég skammaðist mín ógeðslega mikið, en ég fylgdist vel með og ég skal sko gera þetta sjálf í næsta skipti.

Áfram stelpur við getum þetta sjálfar, svona einhvern veginn hljómaði eitthvað lag frá áttunda áratugnum og við skulum taka það til fyrirmyndar. Það er ekkert mál að skipta um dekk.

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Komiði sæl og blessuð !!!!

Það getur nú verið erfitt að koma sér í gírinn eftir svona indælt frí þar sem lítið var gert annað en að borða og sofa mmmmmm. Ekkert djamm á minni þessa páska og líkaði það bara asskoti vel. Við fjölskyldan sátum þó ekki auðum höndum því nóg var af veislunum. Ég byrjaði nú páskafríið með að sofa ærlega út á skírdag og rétt hafði tíma til að hafa mig til í fermingarveisluna hans Jóhans Bergs frænda míns (hann er sonur Gumma bróður pabba). Þetta var hins glæsilegasta fermingarveisla með ennþá glæsilegri kræsingum, nammi namm, enda borðaði ég eins og ég væri Hjalti Úrsus. Hvað maður getur verið gráðugur þegar maður kemst í góðan mat og mikið af honum. Í veislunni var happdrætti þar sem dýrindis páskaegg voru í boði og vann hann pápi gamli eitt slíkt. Svo tróð hann Jóhann upp og spilaði frumsamið lag á rafmagnsgítarinn sinn, algjör rokkari sko bara helv. flínkur á gítarinn. Gott mál að fá rokkara í fjölskylduna.
Á föstudaginn langa kíkti ég í heimsókna til Önnu Sig vinkonu minnar en hún var í bústað með fjölskyldunni sinni í Borgarfirðinum, nánar tiltekið í Svignaskarði. Um kvöldið fórum við í bústaðinn og Sísú og Þór vinafólk mömmu og pabba komu í mat og var lambalæri á boðstólnum, mjög gott. Á laugardaginn þurfti ég svo að fara í vinnuna kl 10 og var frekar erfitt að koma sér á lappir en svo var þetta bara allt í lagi, náttúrulega brjálað að gera en tíminn því fljótari að líða. Á sunnudaginn vaknaði ég seint og sá mér til mikillar ánægju páskaegg fyrir framan herbergið mitt. Maður er nú meira dekurbarnið, og þetta var sko páskaegg NR 5 !!!! ég hef aldrei á ævinni fengið svona stórt páskaegg. Held að foreldrarnir hafi tekið flipp út í kaupfélagi. Ég er sko ekki hálfnuð með það skal ég segja ykkur. Um kvöldið var svo matarveisla hjá ömmu og afa og meira lamb í magann. Kvarta ekki yfir því. Edda kom svo upp eftir með okkur um kvöldið og við systurnar sátum fram á nótt og stútuðum nokkrum bjórum. Verí næs. Á mánudaginn var svo komið að enn einni veislunni en hún Bryndís Ösp frænka mín var að fermast (hún er dóttir Birgis, sem er sonur Kristbjargar sem er systir hennar mömmu), það var líka mjög fín veisla og enn meira át og græðgi. Ég var svo uppgefin eftir þetta að ég rotaðist um 10 leytið á mánudagskvöldið, það getur sko reynt á að borða mikið og liggja í leti dag eftir dag.

Jæja nú vitið þið nákvæmlega hvernig páskarnir voru hjá mér og ég vona að þið hafið haft það jafn gott og ég.

mánudagur, apríl 05, 2004

Þá er komið framhaldinu og þið fáið að vita hvað gerðist á laugardeginum og sunnudeginum.

Laugardagur: Komum okkur ekki framúr fyrr en um hálftvö og Anna Katrín myndarlega gerði fyrir okkur amerískar pönnukökur með sýrópi, namm namm. Þær voru mjööög góðar. Eftir mikið og gott át röltum við niður á Strik og ég verslaði nokkra geisladiska í Fona. Svo var komið að því sem ég hafði beðið eftir AÐ VERSLA Í H&M !!!!!! Þar fann ég á mig nokkrar fínar flíkur sem ég er mjög ánægð með. Komum heim um kvöldmatarleytið og fengum okkur blund. Borðuðum kvöldmat frekar seint og franski meðleigjandinn hennar Önnu eldaði fyrir okkur franskar pönnukökur sem voru rosalega góðar. Sannkallaður sælkeradagur :) Við fórum svo í partý til vinar Möggu og Sigfúsar sem býr í Österbro, í n.b. einni af flottustu íbúð sem ég hef séð. Þar var alveg meiriháttar gaman og hittum fullt af Íslendingum. Við enduðum svo kvöldið á skemmtistaðnum Park sem er n.k. risa-Astróstaður. Park er mjög stór og flottur staður og við skemmtum okkur konunglega og komum ekki heim fyrr en undir morgunn.

Sunnudagur: Sváfum frameftir og tókum því bara rólega. Röltum og skoðuðum litlu hafmeyjuna áður en Magga hélt svo heim á leið til Jótlands. Hrafn flaug svo heim seinni partinn. Um kvöldið kíktum ég og Anna á grænmetisstað sem ég man ekki hvað heitir lengur, R eitthvað, og fengum rosalega góðan mat. Svo fór ég bara að sofa um miðnætti og flaug heim rétt fyrir 11 á mánudagsmorguninn.

Þetta var æðisleg ferð og ég er mjög ánægð með hana. Það eru komnar myndir á myndaalbúmið mitt, endilega kíkið á þær. Myndasíðan er búin að vera að stríða mér þannig að það getur verið að það þurfi að klikka á newest til að fá nýjasta myndaalbúmið inn.

sunnudagur, apríl 04, 2004

Kveðja frá Danmörku !!!!!

Ég sit hérna inni hjá Önnu og ákvað að skrifa nokkrar línur um rosalega vel heppnaða ferð. Það er búið að vera meiriháttar gaman hérna og ég er sko ekki tilbúin að fara heim í fyrramálið. En svona er nú lífið þýðir ekki að gráta það. Ég og Hrafn komum samferða hingað og vorum við komin um hádegisbil á föstudaginn og það var ekkert smá gaman að hitta hana Önnu Katrínu aftur :) Fórum heim til Önnu sem að býr á frábærum stað, gatan heitir Amaliegade og er konungshöllin við sömu götu og sést hérna út um gluggan. Þetta er rosalega fín íbúð, risastór herbergi og hátt til lofts. Allavegana þá skelltum við okkur á strikið og fengum okkur bjór sem er alveg nauðsynlegt. Magga kom svo um kvöldið frá Jótlandi og var frábært að hitta hana. Svo var nokkrum bjórum sporðrennt og við fórum á japanskan veitingastað sem var svo ekkert japanskur og var maturinn vondur þar því miður en við létum það ekki eyðileggja kvöldið og fórum á mjög fyndin bar rétt hjá strikinu og drukkum meira þar og svo fórum við á frábæran klúbb sem heitir Stengade 30. Þar var meiriháttar tónlist og við dönsuðum þar til að vera hálf sex, ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA GAMAN og fullt af sætum strákum ;) Þetta var eins og Sirkus í þriðja veldi, svipað fólk, rosalega mikið fyllerí og frábær tónlist. Vel heppnað kvöld.

Jæja ég þarf að þjóta ætlum að kíkja út að borða, ég skrifa um laugardaginn þegar ég kem heim, þið verðið bara að bíða spennt eftir framhaldinu.

fimmtudagur, apríl 01, 2004

1. apríl er svona dagur sem maður nennir ekki. Ég er alltaf á nálum að einhver ætli að gabba mig og því þýðir ekkert að segja mér frá neinu, ég mun ekki trúa því. Það fyrsta sem ég gerði í morgun var að skoða moggann með röntgenaugum og leita eftir gabbi. Sem betur fer var það mjög augljóst (eins og alltaf), Brúsi kallinn bara að koma til landsins og einungis 350 miðar eða e-ð álíka í boði á tónleika sem hann ætlar að halda á NASA. He he þetta er samt nokkuð gott grín, það trúir þessu örugglega einhver.

Ég er í fríi í dag og er bara að hafa það náðugt að pakka fyrir Danmerkurreisuna Á MORGUN !!!! Ætla svo að hitta hann Júlíus sem er byggingarstjóri hjá BYGG og sér um innréttingarnar í íbúðunum. Ætla að skoða hvernig þetta lítur út og hvaða val ég hef og svoleiðis. Mjög spennandi :)

Skrýtin nöfn: Ólafína og Sumarlína !! Hvað gekk foreldrunum til ????