Jæja best að skrifa nokkrar línur, ég er búin að vera glated í þessum bloggmálum upp á síðkastið. Ég er rosalega ánægð með úrslit Idol keppninnar, mér finnst Fantasia geðveikt góð og hún átti sko skilið að vinna.
Þessi vika er búin að vera skemmtileg hjá mér, á miðvikudaginn fór ég á Pixies tónleikana og það var æði. Mér fannst hálf ótrúlegt að sjá þau upp á sviði og spila þessi lög sem maður þekkir svo vel og er búin að hlusta á síðan maður var unglingur. Meiriháttar gaman. Á fimmtudaginn fór ég með vinnufélögum mínum í leikhús að sjá Edith Piaf sýninguna. Actavis lyfjafyrirtækið bauð öllu starfsmönnum apóteka í leikhús og svo var boðið upp á drykki og snittur í hléinu, ekki slæmt. Ef þið viljið fara í leikhús þá mæli ég með þessari sýningu, hún var æðisleg. Ég var alveg heilluð og hún Brynhildur sem leikur Edith er stórkostleg það er ekki annað hægt að segja. Það ætlaði allt um koll að keyra í lokin og það stóðu allir upp og klöppuðu fyrir henni. Svo eru lögin líka svo flott og var hljómsveit allan tímann sviðinu og spilaði með. Það er bara must að sjá þetta. Næsta mál á dagskrá er að fara að sjá Rómeó og Júlíu, það verða bara nokkrar sýningar í júní og ég auglýsi hér með eftir einhverjum sem vill fara með mér.
Nú ætla ég að fara að njóta helgarinnar og ég óska öllum góðrar helgar :)
