Halló allir saman, þetta er orðið að mánaðarlegum skrifum hjá mér. Það er nú betra en ekkert. Er ennþá að ná mér eftir síðustu viku, fór á djammið 3 daga vikunnar. Jesús minn er ekki gerð fyrir slíkt lengur. Á miðvikudaginn fór ég í óvissuferð með vinnunni, sem sagt öll Lyf og heilsu apótekin saman. Það var svaka fjör, fórum út á Faxaflóa og vorum í partýi þar, partýið var svo búið um miðnætti og þá fór ég og hitti Eddu systur á Hverfisbarnum. Við djömmðum til 4 og ég var geðveikt túristaleg í flíspeysu og með bakpoka og fílaði mig bara vel. Því miðu kom samt brunagat á flíspeysuna svo að ég mæli ekki með slíkum klæðnaði á skemmtistöðum Reykjavíkurborgar.
Á föstudagskvöldið fór ég í bústað til Þóreyjar og Eysteins austur í Miðhúsaskógi í tilefni af brúðkaupi þeirra þann 17.júni. Elsa og Fjalar og Jósep og Kristjana voru líka þar og var bara svaka stuð, kareokí og læti. Ég þurfti svo að vakna snemma á laugardeginum og hafa mig til og bruna í bæinn í útskriftina frá Háskólanum sem byrjaði eitt. Mamma var að útskrifast með mastersgráðu í íslensku og brilleraði bara. Eftir athöfn var haldið heim til ömmu og afa og skálað í kampavín og svo fórum við fjölskyldan út að bora á Rossopommodoro. Það var ágætur matur þar á góðu verði, ekkert súper samt. Um kvöldið lá leiðin næst í útskriftarveislu til Ólafar vinkonu en hún var að útskrifast út læknisfræði með glæsibrag. Það var mjög skemmtileg veisla og fórum við eftir hana til Önnu Katrínar. Svo var náttúrulega haldið í bæinn á kaffibarinn og þar voru Gullfoss og Geysir að spila en þeir spila skemmtilegustu tónlist í heimi. Ógeðslega gaman þar en ég var samt orðin ansi full undir lokin, enda dauðþreytt eftir átök síðustu daga. Skemmtileg helgi en þetta verður ekki endurtekið í bráð.