Edda til hamingju með afmælið :) Hún er orðin 23 ára snótin og er á leiðinni til Noregs eftir nokkra daga.
Ég er að vinna núna í Domus Medica, var lánuð hingað í 3 daga og það er bara fínt. Gaman að skipta aðeins um umhverfi. Annars ætla ég að taka því rólega um helgina nema á laugardaginn en þá ætla ég að skella mér á Innipúkann í Iðnó og á laugardeginum verður fjölskyldugrill í Borgó. Ég tók mér frí á þriðjudaginn svo að þetta verður löng helgi mmmmm :) :)
Hvað ætlar fólk annars að gera um verslunarmannahelgina?


