fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Þetta er búinn að vera mikill hangsdagur hjá mér og ég er búin að njóta þess í botn. Er að lesa bókina Angels and Demons eftir Dan Brown, sá sem skrifaði Da Vinci lykilinn, og ég get bara ekki látið hana frá mér hún er svo spennandi þannig að mestur hluti dagsins fór í það að lesa hana. Núna er ég búin að vera að dunda mér að skrifa nokkra diska og setja myndir á netið. Bætti við myndum í albúmið "Sumarið 2004" m.a. frá ferðinni að Loftsölum með Önnu, Valdísi og Kötu og svo er ég búin að setja myndirnar frá Osló í sér albúm. Endilega kíkið á þessar glimrandi myndir :) Á morgun er svo mikið að gerast hjá mér, er að fara í brúðkaup til Lilju og Jónasar. Lilja var með mér í 5. og 6. bekk í MR og við erum saman í saumaklúbb. Þetta verður svaka stuð og gaman að hitta píurnar úr saumaklúbbnum því við höfum ekki verið alltof duglegar að hittast.

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Ummm það er svooo næs að vera í sumarfríi !!!!!! Kom heim í gær frá Osló og er rosa ánægð með ferðina. Það var gaman að hitta systu og túristast aðeins um borgina. Edda býr á kollegi á stað sem heitir Kringsja og er í svona 10-15 mín lestarferð úr miðbænum. Það er mjög fallegt í Osló og maður sér varla borgina fyrir trjám, sér glitta í hús inn á milli trjánna, mjög sjarmerandi. Ég kom á föstudeginum og við lentum strax í smá ævintýri. Eftir að hafa komið mér fyrir heima hjá Eddu og skipt um föt héldum við niður í bæ til að fá okkur að borða. Þegar við komum á lestarstöðina var lestin bara að koma og við ákváðum að hlaupa inn í hana sem þýddi að við keyptum ekki miða í sjálfsalanum. Tókum bara sénsinn. Fórum út á lestarstöðinni niður í bæ og sáum okkur til mikillar skelfinga að þar voru verðir við alla útganga og við komumst ekki út án þess að sýna miða. Við fórum til baka og ætluðum að freista þess að hoppa inn í næstu lest og fara bara út annars staðar en þá vippaði sér maður að okkur og rak skírteinið í andlitið á okkur (eins og einhver FBI gaur) og sagði "billed kontrol" og spurði hvort við værum með miða og við bara neiiii eins og aular. Hann leiddi okkur inn í eitthvað herbergi þar sem kona talaði við okkur og byrjaði að taka niður nafnið hennar Eddu og svo sáum við bara að hún var að gera reikning upp á 750 norskar krónur (7500 kall) og fengum nett sjokk. Þá var bara um að gera að þykjast vera heimskir túristar og við sýndum þarna mikinn leiksigur og tókst að koma okkur út úr þessari klípu. Úff aldrei svindla ég mér í lest aftur, aldrei. Engin smá sekt ef maður gerir það. Eftir þennan hildarleik fórum við að borða á mjög sætum stað sem heitir Dus og svo fórum við á pöbbarölt og komum heim um 2 leytið vel hressar. Myndin hér að neðan er tekið það kvöld. Á laugardaginn var steikjandi hiti og sól og við röltum um bæinn og ég verslaði aðeins, ekki mikið samt og enduðum daginn á að borða á stað sem heitir einmitt Pasta basta og fengum mjög gott pasta þar. Kíktum aftur á pöbbarölt um kvöldið og komum heim um 4 leytið eftir að hafa staðið í týpískri íslenskri leigubílaröð í hálftíma eða meira plús það að það fór að hellirigna og ef Edda úrræðagóða hefði ekki haft regnhlíf hefðum við örugglega orðið veikar. Fólk leit út eins og það hefði hoppað út í sundlaug. Týpísk útlensk bíómyndarigning. Á sunnudaginn vorum við að túristast, fórum í Vigelund garðinn sem er mjög flottur garður með fullt af flottum höggmyndum eftir þennan Vigelund sem er greinilega frægur norskur höggmyndari. Fórum líka upp í Holmenkollen þar sem frægi skíðastökkpallurinn er en þar er mjög fallegt. Stökkpallurinn stendur lengst upp í hlíð og þar er geðveikt útsýni yfir Osló og út á Oslófjörðinn. Þetta var sem sagt hin skemmtilegasta ferð og ég mæli með að fara til Osló, frábær borg.



Myndina sendi ég
Powered by Hexia

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Jess ég er komin í sumarfrí og verð í u.þ.b. 2 vikur :) yndislegt. Ég var eiginlega rekin í sumarfrí í vinnunni á mánudaginn, er búin að vera að treina það þangað til ég fæ íbúðina en ég ætti að fá hana í lok næstu viku svo að þetta er barasta fínn tími til að fara í smá frí. Ég finn hvað ég þarf á örlitlu fríi að halda, var komin með svoldið ógeð í vinnunni. Svo var ég að tala við Eddu Oslóarbúa á msn á mánudaginn og fór svo að spá í verði á flugi til Oslóar, kíkti á punktastöðuna og sá að ég átti 34 þús punkta inni og þar með tók ég þá ákvörðun að skreppa núna um helgina til Norge. Fer á föstudagsmorgun og kem heim á mánudaginn :) Ég hef aldrei komið til Noregs þannig að ég er orðin mjög spennt, það verður gaman að hitta systu og kíkja á lífið í Osló.

mánudagur, ágúst 16, 2004



Myndina sendi ég
Powered by Hexia


Eg fór med Önnu Katrinu, Valdisi og Kötu a ættarodal Önnu, Loftsali, vid Dyrholaey. Vid forum a laugardaginn i blidskaparvedri og höfdum tad voda gott og mikid bordad læt fylgja med myndir

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

miðvikudagur, ágúst 11, 2004


Reykjavik a godvidrisdegi tekid af svölunum hja ömmu a Snorrabraut ekki leidinlegt ad vera i frii a svona degi

Myndina sendi ég
Powered by Hexia



Myndina sendi ég
Powered by Hexia

mánudagur, ágúst 09, 2004

hmmmm ég hef ekkert að segja, EKKERT
Ég kann að meta þessa hitabylgju sem er í gangi og ég verð í fríi á miðvikudaginn, jess þá get ég kannski reynt að fá hálfan lit á kroppinn. Ég hef aldrei komið svona hvít undan sumri áður :(

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Þá er fyrsta vinnudeginum mínum að lokinni verslunarmannahelgi lokið og ég er strax farin að telja niður til helgarinnar. Verslunarmannahelgin hjá mér var mjög fín, á föstudagskvöldið þá kíkti ég í heimsókn til Þóreyjar og fékk að hitta Andrés litla andarunga sem er sætasta dýr sem ég hef séð á ævi minni. Á laugardaginn var fjölskyldugrill upp í bústað þar sem öll föðurfjölskyldan var samankomin og var mjög gaman og mikið borðað. Um kvöldið fórum ég, Jenni, Anna Katrín, Kata, Hrafn og Mikael á Innipúkan og þar hitti ég hana Eddu systur og Benna. Það var meiriháttar gaman á Innipúkanum, ég verð bara að segja það og hápunktur kvöldsins var Ómar Ragnarsson. Maðurinn er fáránlega fyndinn, ég hélt ég myndi deyja þegar hann tók sveitaball og hoppaði út um allt svið og endaði liggjandi á gólfinu. Snillingur. Enduðum nóttina á Sirkus og þar var gaman fyrir utan bjórinn sem ég fékk yfir mig ALLA út af einhverri útúrdópaðri og drukkinni gellu. Sunnudagurinn fór í rólegheit og vídeó í nesinu og á mánudaginn fór ég í afmæli til hennar Andreu litlu frænku minnar sem varð tveggja ára 1. ágúst. Edda fór svo til Noregs í gærmorgunn og kemur ekki heim fyrr en í lok desember snökt ! Það verður nú leiðinlegt að hafa hana ekki hérna en þetta verður fljótt að líða og hún á eftir að skemmta sér konunglega í Norge.

Búin að henda inn myndum frá Verslunarmannahelginni, þær eru flestar úr grillpartýinu en nokkrar eru frá Innipúkanum.