Ég er komin með nýjan myndalink sem kallast því frumlega nafni Myndir2 og var að henda inn myndum af íbúðinni minni og frá grillpartýi Spatúlanna sem var síðustu helgi.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
þriðjudagur, september 28, 2004
Jæja þá er ég búin að panta gardínur fyrir svefnherbergið, liggur víst mest á því að fá eitthvað fyrir gluggana þar. Búin að pæla í þessu fram og tilbaka. Fyrst var ég að spá í myrkratjöldum en svo gekk það ekki upp útaf breiddinni á glugganum, svo var ég alveg ákveðin í að hafa mjóa álrimla en svo komst ég loks að niðurstöðu í dag (með smá hjálp frá múttu) að kaupa breiða trérimla. Ekki beint ódýrasta lausnin en þetta verður geðveikt flott. Þetta eru svona hvít/beige trérimlar, meiriháttar flottir og það nýjasta á markaðnum sko ;) Er samt ákveðin í að hafa rúllugardínur fyrir stofunni, finnst það mjög flott og stílhreint og er ekki nærri því eins dýrt og trérimlar.
Fór í grillpartý á laugardagskvöldið hjá spatúlunum og það var rosalega gaman. Meiriháttar góður matur, lambakjöt og kjúlli og gott meðlæti. Þetta endaði náttúrulega í svaka stuði en flestir fóru þó heim eftir partýið nema ég og Jenni, við kíktum á ölstofuna og svo bar 11 og vorum ekki komin heim fyrr en undir morgun :( Að maður skuli ekki geta drullað sér heim fyrr. Frábært kvöld samt sem áður.
laugardagur, september 25, 2004
Þá er ég orðin Svala morðingi :( Var bílstjóri fyrir m&p í gærkvöldi og var að keyra heim um hálfeitt leytið. Vorum komin upp á Kjalarnes þegar mamma rekur allt í einu upp þetta gífurlega óp og ég vissi ekki hvað var í gangi, hélt ég myndi fá hjartaáfall mér brá svo mikið. Þá sé ég allt í einu dýr á veginum sem virtist vera minkur og ekki séns fyrir mig að stoppa bílinn og ég dúndraði beint yfir greyið. Fann þegar ég keyrði yfir hann, greyið :( Vonandi hefur hann drepist strax. Ég var alveg miður mín og er enn, fyrsta skipti sem ég drep dýr. Gat ekki einu sinni stoppað og tékkað á dýrinu það var mikil umferð og svo brjálað rok, rigning og svartamyrkur. Ef þið eruð farþegar í bíl þá mæli ég með því að æpa ekki ef eitthvað svona gerist, bílstjóranum bregður FREKAR mikið. Gæti endað með stórslysi.
föstudagur, september 24, 2004

tad er svo gaman i vinnunni veiii, her sjaid tid mig innan um vini mina :-) nei eg er ekki ad snappa bara litid ad gera og mer leidist. Annars var Alias gedveikt spennandi i gær madur getur varla bedid eftir næsta tætti
Myndina sendi ég
Powered by Hexia
þriðjudagur, september 21, 2004
Úff hvað maður er eitthvað latur og þreyttur. Ég held að veðrir geri mann svona, kalt og rok :(
Mér finnst svo erfitt að vakna á morgnana þegar ég heyri í veðrinu og veit að það er kalt og hráslagalegt úti. Ég hlakka ekki til þegar það fer að verða svartamyrkur á morgnana, það er svo erfitt að vakna. Ein þreytt :)
Parketið er komið á íbúðina mína og það kemur rosalega vel út :) Pabbi er búinn að vera svaka duglegur. Hann tók sér frí í vinnunni á föstudaginn og byrjaði þá svo hjálpaði Jenni honum á laugardaginn og þá skotgekk þetta. Parketið kláraðist reyndar á sunnudaginn og þá vantaði ennþá fjóra planka en pabbi náði í þá í gær og kláraði dæmið. Það á bara eftir að leggja lista á hluta íbúðinnar. Ég tók nokkrar myndir og ég set þær við fyrsta tækifæri á netið.
Endaði reyndar á djamminu á laugardaginn sem var EKKI planið. Við Jenni fórum út að borða á Vegamótum (nammmmm) og kíktum svo í afmæli til vinar hans. Við ætluðum sko heim kl 12, búin að ákveða það takk fyrir en neii nokkrum bjórum síðar vorum við alveg til í að skella okkur með strákunum á Fylkisball. Guð minn góður þvílík samkoma, ég hélt ég myndi deyja úr hlátri. Í svörtum fötum var að spila og þeir voru allt í lagi en fólkið var drepfyndið. Sá tvo fyrrverandi kennara mína úr lyfjafræði, Tryggva sem kenndi okkur í lyfjagerðarfræði og gaurinn sem kenndi okkur rekstrarfræði (þegar ég sá hann hugsaði ég bara um viðskiptaáætlunina og fékk hroll). Kíktum svo aðeins niður í bæ en það var ekkert sérstakt þar. Það eina sem ég fékk út úr þessu var þynnka :(
Fór á sunnudagskvöldið á tónleika með Blonde Redhead og þeir voru frábærir. Tónleikarnir voru í Austurbæ og mér fannst það bara stemmning að vera þar, manni fannst samt eins og maður væri að fara í bíó.
fimmtudagur, september 16, 2004
Vá hvað maður er fatlaður án símans, gleymdi símanum hjá Jenna og verð símalaus þangað til annað kvöld. Manni finnst eins og vanti bara eitthvað á mann. Þetta er nú ekki hægt. Ætli það sé til símafíkn, my name is Svala and I´m a phonoholic. He he.
BÚIN AÐ KAUPA PARKET !!!!! Keypti ask cambridge frá Agli Árnasyni og svo verður bara hafist handa við parketlögn á morgun.
þriðjudagur, september 14, 2004
Held ég sé að verða geðveik, mig dreymdi bara parket í nótt. Er að reyna að velja mér parket, var komin með 10 prufur en er búin að þrengja valið niður í 3 og verð helst að velja í DAG. Býst við ég endi með ask, hlyn eða beyki, allavegana eitthvað svona í ljósari kantinum. Pabbi er svo góður að hann ætlar að leggja fyrir mig parketið og sparar mér dágóða summu á því. Helgin fer svo væntanlega í þetta og ég hlakka ekkert smá til að sjá íbúðina þegar parketið er komið á. Annars er ég rosalega ánægð með fínu íbúðina mína og get ekki beðið eftir því að flytja inn.
Ætli mig fari ekki að dreyma gardínur þegar parketið er komið, það verður næsta missjón.
