Jæja, þá er seinasti dagurinn hér á Akranesi runninn upp. En hvað tíminn líður hratt. Ég gerði mér lítið fyrir og bakaði eitt stykki súkkulaðiköku í gær til að koma með í vinnuna. Ekki eitthvað sem ég er vön að gera og hún kom bara rosalega vel út. Það verður svolítið skrýtið að vera ekki að vinna hérna lengur en náttúrulega spennandi að fara að byrja á nýjum stað.
Ég fer á Húsavík á mánudaginn og verð í 2 VIKUR en ég hélt að ég þyrfti bara að vera í viku. Þetta verður spennandi, fæ stúdíóíbúð til að vera í sem er rétt hjá apótekinu og svo hef ég ekki komið á Húsavík síðan ég var krakki. Verst bara að ég get ekki smyglað honum Jenna með ;)
Róleg helgi framundan hjá mér eftir átökin síðustu helgi. Góða helgi allir og næsta blogg mun vera úr Þingeyjarsýslunum.
