Nokkur orð úr Borgarnesi. Ég er voðalega andlaus bloggari þessa stundina. Er í vinnunni og það er mjög lítið að gera enda nennir fólk ekki að vera mikið á ferðinni í þessum kulda. Fór út á Snæfellsnes í gær og heimsótti útibúin mín og mér leist bara vel á. Þetta verður heilmikið að halda utan um en samt mjög fjölbreytt þannig að þetta leggst barasta vel í mig.
Jenni minn átti afmæli í gær þannig að ég eldaði góðan mat og bauð upp á hvítvín með matnum, mjög næs :)
Ég er að vinna á morgun og svo er jólastuð spatúlanna annað kvöld með tilheyrandi góðum mat og drykkjarföngum ;)



