miðvikudagur, desember 29, 2004

Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á aafmælii ííí daag,
ég á afmæli í daaaaag

Hún er orðin 28 ára gömul stúlkan :)

mánudagur, desember 27, 2004

Þá er maður mættur aftur til vinnu eftir 3 sæludaga. Mikið borðað og mikið sofið og rosalega var erfitt að drattast á fætur í morgun. Mér finnst að það ætti að vera frí á þriðja í jólum. Ég fékk fullt af fínum gjöfum og hef bara sjaldan fengið svona marga pakka :) Amma var nú samt sigurvegari kvöldsins með lang mest af pökkum enda á hún nú orðið ansi marga afkomendur. Ég fékk m.a. tvær bækur (Fólkið í kjallaranum og 11 mínútur), geisladisk með Kings of Leon, Star Wars trilogíuna á DVD, Monty Python þætti á DVD, ryksugu, handþeytara, glerskálar fyrir heitan mat, strigaskó, húfu, lampa, gjafakort í Smáralind, lítinn jólasvein, sjal, buddu úr þæfðri ull, já held ég sé ekki að gleyma neinu :)
Fór í hangikjöt til ömmu og afa á jóladag og tók Jenna með mér, það var rosa fínt og ég borðaði yfir mig af hangikjöti. Ég og Jenni vöktum svo til 2 að horfa á Seinfeld þætti. Í gær fór ég í jólaboð hjá tengdó, rosa flott kökuhlaðborð nammi namm. Enduðum daginn á bíóferð, fórum að sjá The Incredibles. Hún er mjög skemmtileg, mæli með henni.

föstudagur, desember 24, 2004

GLEÐILEG JÓL

Ég óska öllum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári

Hafið það gott yfir jólin og borðið mikið :)

fimmtudagur, desember 23, 2004

1 DAGUR TIL JÓLA

Vá það er bara komin Þorláksmessa, rosalega líður tíminn hratt. Hér í sveitinni er alveg hrikalega kalt, eitthvað um -13°C brrrrr. Er að vinna frá 9-23 og 9-12 á morgun. Ekkert jólafrí á þessum bæ. Maður verður að taka góðan blund fyrir matinn annað kvöld svo ég sofni ekki ofan í grjónagrautinn :) Ég missi af skötunni þetta árið, hefði alveg verið til í að fá mér smá. Finnst hún bara ágæt á bragðið.

miðvikudagur, desember 22, 2004

2 DAGAR TIL JÓLA

Vá hvað það er kalt og það verður enn kaldara á morgun brrrrrr.

Ég ætla að gera allt í kvöld, veit ekki hvernig þetta endar. Þarf að fara í Smáralind, kíkja til Þóreyjar í nýju íbúðina og láta hana fá pakkann sinn, gera jólahreingerninguna, skreyta íbúðina, pakka inn þeim gjöfum sem ég þarf að skilja eftir í bænum og koma þeim í réttar hendur. Ég er meistarinn í að framkvæma allt á síðustu stundu. Mér finnst samt stemning að eiga svoldið eftir svona rétt fyrir jólin :)

þriðjudagur, desember 21, 2004

3 DAGAR TIL JÓLA

Er á síðustu stundu að skrifa jólakortin eins og vanalega. Verð bara að skrifa þau á milli lyfseðla ;)

mánudagur, desember 20, 2004

4 DAGAR TIL JÓLA

Já jólin eru sko alveg að koma og ég er komin í mikið jólaskap :)

Helgin var frekar stutt hjá mér var að vinna til níu á laugardagskvöldið en skellti mér með Önnu og Valdísi á kaffihús eftir vinnu.

Kláraði jólainnkaupin í gær, við skötuhjúin röltum Laugaveginn. Mér finnst það algjört möst að fara Laugaveginn allavegana einu sinni fyrir jól. Veðrið var mjög gott í gær og fullt af fólki í bænum og mikil stemning. Maður fær ekki alveg eins mikla innilokunarkennd og í Kringlunni og Smáralind. Enduðum daginn á að fara í bíó á Ocean´s twelve og var hún bara alveg ágæt.

föstudagur, desember 17, 2004

7 DAGAR TIL JÓLA

Ég missti af Alias í gær :( Getur einhver sagt mér hvað gerðist?

Ég held að bíllinn minn ætti að fá verðlaun. Hann virðist bara komast allt. Fór í Búðardal í gær og þurfti að fara yfir fjallveg sem heitir Brattabrekka til að komast úr Borgarfirðinum yfir í Dalina. Úff þar var bara skafrenningur þannig að ég sá varla á milli stika og skaflar á veginum. Þurfti bókstaflega að fara fetið en annars gekk þetta bara vel. Bíllinn minn er hetja. Fegin var ég nú samt að komast heim eftir að hafa þurft að fara yfir Bröttubrekku tvisvar :/

Ég geri nú ekki mikið í kvöld nema kannski að horfa á Idolið :) Er að fara að vinna á morgun frá 10-21 þannig að ég fer nú bara snemma að sofa.

fimmtudagur, desember 16, 2004

8 DAGAR TIL JÓLA

Meira ferðalag í dag. Er að fara í Búðardal og heimsækja útibúið mitt þar :)

Edda systir kom heim frá Noregi í gær og það var rosalega gaman að fá hana heim :)

miðvikudagur, desember 15, 2004

9 DAGAR TIL JÓLA

Ég er að fara út á Snæfellsnes í dag og heimsækja útibúin í Stykkishólmi og Grundarfirði. Gaman að fara í smá ferðalag. Það er reyndar ískalt og örugglega flughált en þá er bara best að fara varlega.

þriðjudagur, desember 14, 2004

10 DAGAR TIL JÓLA

Fór á lyfsöluleyfishafa fund í morgun í fyrsta skipti og ég var frekar stressuð en svo gekk það bara vel. Ótrúlegt hvað maður getur miklað hlutina fyrir sér.

Glerhálka í morgun á leiðinni uppeftir og ég er barasta guðslifandi fegin að vera komin á naglana, þyrfti helst að eignast betri bíl.

mánudagur, desember 13, 2004

11 DAGAR TIL JÓLA

Mánudagur heilsar með brjáluðu veðri. Ég svaf lítið í nótt fyrir látunum í veðrinu :(

Helgin var fín og mikil afslöppun. Stelpurnar sem ég var að vinna með á Akranesi komu í heimsókn á laugardagskvöldið og var voða gaman að hitta þær aftur. Þær gáfu mér þennan líka fína blandara þannig að nú get ég farið að blanda boozt á fullu ;)
Fór í Byko og keypti mér ljós í eldhúsið og á ganginn. Þetta er allt að koma, Rússarnir hverfa óðum.
Keypti fyrstu jólagjafirnar um helgina og mér finnst ég bara vera snemma í því. Ætli ég ljúki þessu ekki bara af næstu helgi og vikuna fyrir jól. Þarf ekki að gefa svo margar gjafir. Hins vegar þarf ég að fara að drífa mig í jólakortaskrifum, nenni ekki að vera að því á seinustu stundu. Ætla bara að sleppa öllu jólastressi því það er algjör óþarfi :)

Ef þið viljið senda mér e-meil þá er best að senda á svalaattlyfja.is eða svalabmattyahoo.com Hotmailið er í einhverju rugli hjá mér, hef ekki komist inn á það síðan á fimmtudaginn :(

föstudagur, desember 10, 2004

14 DAGAR TIL JÓLA

Mamma og pabbi eiga 27 ára brúðkaupsafmæli í dag, til hamingju !!!!!

Ætla loksins að setja vetrardekkin undir í dag, er búin að vera allt of lengi skautandi á sumardekkjunum :/

EF ÞIÐ HAFIÐ EKKI HORFT Á ALIAS Í GÆR EKKI LESA ÁFRAM

Alias var rosalegur í gær, konan hans Vaughns er sko VOND. Hún og Sark eru helvíti góð saman og hún fer ekkert í taugarnar á mér lengur núna þegar hún er orðin almennilega vond. Tarantino lék líka fyndna týpu, er ekki alveg viss hvort hann sé að leika sama gaurinn og hann gerði í fyrstu seríu.

fimmtudagur, desember 09, 2004

15 DAGAR TIL JÓLA

Fór í gær á stofnfund húsfélagsins í blokkinni minni og get ekki annað sagt en að það hafi verið frekar boring. Þegar við komun þá var bara eitthvað gamalt lið þarna og mér leist nú ekki á en svo komu nú sem betur fer nokkrir ungir þannig að ég gat andað léttar. Hef ekkert á móti eldri borgurum ég vil bara taka það fram en maður vill helst búa í blokk það sem er breitt aldursbil. Fundurinn gekk ágætlega og það var kosið í stjórn og svona en maður sá strax hverjir verða nöldrararnir og með eitthvað vesen. Svo fór einhver eldri kona strax að tala um það að byggja yfir svalirnar, oh mér finnst það sko ekki flott.

Jess Alias í kvöld, þetta er svo ógurlega spennandi núna maður.

miðvikudagur, desember 08, 2004

16 DAGAR TIL JÓLA

Hvað finnst ykkur um hópinn sem ætlar að birta auglýsingu í New York Times og biðjast afsökunar fyrir þátt Íslands í Íraksstríðinu og að íslenska þjóðin hafi ekki stutt innrásina? Ég veit nefnilega ekki alveg hvað mér finnst, þetta er svoldið fyndin hugmynd en ætli hún hafi tilætlaðan árangur? Ég er á móti þessu stríði og finnst hræðilegt að Ísland sé á þessum lista yfir staðfastar þjóðir. Get ekki séð að þetta hafi áorkað neinu nema meiri hörmungum fyrir fólkið í Írak.

En hvað með konuna sem keyrði á lögreglubílinn og bakkaði síðan og tók tilhlaup og dúndraði aftur á hann ???? Í fréttablaðinu í dag segir að hún hafi verið að elta mann sem hún segir að hafi látið sig í álög og hann kallaði á lögguna til að hjálpa sér. Þetta er bara eins og úr einhverri bíómynd, gat nú ekki annað en hlegið þegar ég las fréttina þótt þetta sé náttúrulega ekki fyndið. Fór að ímynda mér lögreglumennina fasta í bílnum með öryggispúðana í andlitinu á sér og sjá hana bakka og koma á fleygiferð aftur á bílinn. Bannað að hlæja að svona, ég veit.

þriðjudagur, desember 07, 2004

17 DAGAR TIL JÓLA

Shit ég er í sjokki eftir Sopranos í gær, vá maður var bara miður sín. Ég er hræðileg ég lifi mig svo inn í þætti. Ætla ekki að segja meira ef einhver á eftir að horfa á þáttinn.

mánudagur, desember 06, 2004

18 DAGAR TIL JÓLA

Þá er maður mættur til vinnu endurnærður eftir góða afslöppunarhelgi.

Fór á föstudagskvöldið á jólahlaðborð á Hótel Borg með Önnu Katrínu, Valdísi, Ólöfu, Hrafni, Möggu, Sigfúsi, Birnu og Sigga. Það var æðislega gaman og rosalega góður matur. Borðaði reyndar yfir mig og maginn var ekki alveg sáttur við allt þetta reykta kjöt en það er um að gera að venja hann við fyrir jólin.

Þórey og Eysteinn kíktu í kaffi á laugardaginn og svo var bara legið í leti um kvöldið. Tókum myndina Eternal sunshine of the spotless mind ( minnir mig að hún heiti ) og ég mæli með henni, hún er svoldið skrýtin en mjög góð.

Sunnudagurinn var líka afslöppunardagur, kíkti í Tekk húsið og Kringluna. Það er svo mikið af sætu dóti í Tekk húsinu að ég varð alveg veik en keypti ekkert í þetta sinn. Í Kringlunni var svo stappað af fólki í tryllingsham. Meikaði ekki að vera þar lengi. Af hverju er fólk að missa sig 5.des, jólin eru ekki fyrr en 24. Úff ég vona að ég verði aldrei ofurstressuð húsmóðir sem þarf að baka 100 sortir,föndra allt jólaskraut og kaupa þúsund pakka o.s.frv.

föstudagur, desember 03, 2004

21 DAGUR TIL JÓLA

Yndislegt, það er kominn föstudagur og ég er ekki að vinna á morgun, bara heil helgi í frí :):)

Ég er að fara á jólahlaðborð á Hótel Borg með vinahópnum. Maður er bara grand á því núna. Ég hlakka svo til að fara og borða á mig gat, nammi namm.

Annars er nóg að gera í vinnunni og dagarnir fljúga áfram, sem er bara mjög fínt.

fimmtudagur, desember 02, 2004

22 DAGAR TIL JÓLA

Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann pabbi,
hann á afmæli í daaaaag :)

Hann pabbi er hvorki meira né minna en fimmtugur í dag, til hamingju með afmælið pabbi :) :)



miðvikudagur, desember 01, 2004

23 DAGAR TIL JÓLA

Fór að sjá Bridget Jones í gær og mér fannst hún bara mjög skemmtileg og gat hlegið heilmikið af henni. Hún er kannski ekki eins frábær og fyrri myndin en samt þess virði að sjá hana. Colin Firth er líka súper myndó í henni ;) Hún Valdís var svo heppin að vinna tvo miða á myndina og bauð mér með sér, ekki slæmt það :)

Svo er maður bara búinn að koma í Mogganum og svona. Ég gat ekki lesið viðtalið við mig, kíkti á myndina og lokaði svo. Fór bara hjá mér og roðnaði. Annars eru margir búnir að koma í apótekið og bjóða mig velkomna til starfa sem er bara mjög gaman. Svo eru allir að spyrja stelpurnar sem ég vinn með hverra manna ég er og hvað mamma og pabbi geri og svoleiðis, he he.