Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún mamma
hún á afmæli í daaaaaag.
Til hamingju með daginn mamma :)
Fór í stelpubíó í gærkvöldi að sjá Alfie. Mér fannst hún bara skemmtileg og ekki slæmt að hafa Jude Law á skjánum allan tímann ;)
Hvað leynist í iðrum jarðar?
Hún á afmæli í dag
Já ég veit ekki með Idolið, mér finnst persónulega Hildur Vala, Heiða og Lísa lang bestar og vil sjá þær þrjár í lokin. Ekki nógu skemmtilegur þáttur samt. Af hverju er Brynja þarna áfram???? Ég er alveg sátt við að Margrét Lára fór en hún er samt miklu betri en Brynja. Brynja er bara ekki góð. Ótrúlegt að hún sé þarna ennþá. Gaman að sjá Stebba Hilmars þarna, hann hefði bara átt að taka lagið :)
Alias var stórkostlegur í gær, maður er bara að tryllast úr spenningi. Sloane sýndi sitt rétta eðli loksins, maður var hálfgert að vona að hann væri orðinn svoldið góður en nei nei aldeilis ekki. Get ekki beðið eftir næsta þætti.
Guð horfði einhver á lokaþátt Bachelorette í gær? Þvílík hörmung. Ég hef ekkert fylgst með seríunni en datt inn í þennan þátt. Þetta var svo pínlegt, hún var svo mikið að reyna að gráta og láta sér líða illa yfir því að hún þyrfti að velja á milli þessara tveggja æðislegu manna (sem líta báðir út eins og Ken). Ég bara var ekki að trúa henni, hún er glötuð leikkona. Það þarf enginn að segja mér að þetta sé í alvörunni það var sko greinilegt í gær að þetta er allt leikið.
Iss maður er búinn að vera glated í þessu bloggi.
Hvernig fannst ykkur Idolið í gær? Mér fannst þetta ekki nógu skemmtilegur þáttur einhvern veginn en maður heldur samt áfram að fylgjast með. Ég var ekkert smá hissa að Nanna Kristín skyldi vera kosin í burtu því hún er t.d. miklu betri en Vala. Mér finnst að Vala eða Lísa hefðu átt að fara. Ég held samt að Nanna hafi gleymst, hún söng frekar boring lag og var ekki nógu eftirminnileg. Bubbi fer líka geðveikt í mig núna, hann er svo hrokafullur og leiðinlegur. Greinilegt að Davíð fer í taugarnar á honum og hann vill hann burt. Mér fannst Davíð standa sig ágætlega og finnst fínt að hafa hann áfram.
Úff hvað það var erfitt að vakna í morgun :( Mánudagsmorgnar eru erfiðastir, það er ekki spurning.
Ég verð bara að fá að tjá mig að eins um ökumenn jeppa, eða réttara sagt litla kalla sem eru í testósterón overdrive og að drepast úr einhverju karlmennsku egói. Í gærkvöldi eftir vinnu var ég á leiðinni til Reykjavíkur í svoleiðis fljúgandi glerhálku þannig að ég þorði ekki að fara hraðar en 85. En nei nei ég held ég hafi fengið 4 jeppatrukka í rassgatið á mér (ekki alla á sama tíma samt) og með ljósin beint í augnhæð við mig. Ég ímynda mér alveg hvað þeir voru að hugsa "oh jeppinn minn er svo stór, læt enga hálku stoppa mig en bíddu nú við hvaða bílpadda er þetta á undan mér best að keyra alveg í rassgatinu á henni og reyna að þvinga hana til að fara út í kant og hleypa mér, ég verð að ná góðum tíma í bæinn" eða eitthvað á þessa leið. Vil bara benda jeppastrumpum á að ljósin eru í þeirri hæð að þau skína inn í litla fólksbíla og endurkastast ekki bara í baksýnisspeglinum heldur líka hliðarspeglunum.
GLEÐILEGT ÁR ALLIR SAMAN