27 DAGAR Í PÁSKAFRÍ
Það eru ekki bara 27 dagar í páskafrí heldur einnig 27 dagar þangað til ég og Jenni förum til Dublin, veiiii. Ákváðum að skella okkur út um páskana og Dublin varð fyrir valinu. Ég hlakka ekkert smá til :) :) :) Við förum út á skírdagsmorgun og komum heim á annan í páskum.
Idolkvöld í kvöld. Ég er eiginlega ekkert spennt yfir þessu lengur en maður horfir samt á. Davíð eða Lísa eiga að detta út, Hildur Vala og Heiða eru svo miklu betri en þau. Ef það verður önnur Idolkeppni haldin á næsta ári þá finnst mér tími til kominn að fá nýja dómara. Ég er komin með ógeð á núverandi dómurum.
