3 DAGAR Í PÁSKAFRÍ OG DUBLIN OG SPENNINGURINN MAGNAST :) :) :)
Rólegheitar helgi búin og einungis þriggja daga vinnuvika framundan, jibbí.
Anna Sig og Auður Aþena litla frænka hennar kíktu í heimsókn á laugardaginn. Auður var frekar feimin fyrst en svo leið ekki á löngu þar til hún var orðin eins og heima hjá sér, algjör rúsína :)
Í gær komu Villi (bróðir hans Jenna), Gunna og Grímur Steinn í heimsókn. Grímur er svo mikið krútt og fékk náttúrulega alla athygli gestgjafanna :)
Ég verð nú eiginlega að fá að hneykslast smá á fréttum frá Bandaríkjunum sem ég heyrði í morgun. Það er sem sagt kona í Flórída sem er mjög heilasködduð eftir að hjarta hennar stöðvaðist fyrir 15 árum. Hún getur andað sjálf en fær næringu í gegnum vélar. Hún er sem sagt "grænmeti" (sem er ljótt orð en læknarnir úti segja að hún sé í "constant vegetative state" sem ég kann ekki að þýða öðruvísi). Maðurinn hennar er búinn að berjast fyrir því að hún fái að deyja en fjölskyldan hennar er algjörlega á móti því. Nú er herra Bush búinn að skipa svo fyrir að konunni skuli haldið lifandi í vélum. Ég spyr bara, af hverju fær vesalings konan ekki að deyja, þetta er náttúrulega ekkert líf. Ég vona bara að ef ég lendi einhvern tíman í slysi, eða einhverju þvíumlíku að mér verði ekki haldið lifandi í tækjum. Mér finnst eins og foreldrar hennar séu frekar að hugsa um sig heldur en hana.
Varð bara aðeins að fá að sleppa mér yfir þessari frétt arrrrg.