Helgin var mjög skemmtileg enda var árshátíð Spatúlanna á laugardaginn. Við byrjuðum daginn á að hittast í hádeginu hjá Þóreyju. Fengum gott bakkelsi þar og fórum svo niður í bæ í Keramik fyrir alla. Ég málaði skál með miklum tilþrifum og það verður spennandi að sjá hvernig hún kemur út þegar búið er að brenna hana ;) Hittumst svo í fordrykk hjá Elsu Steinunni og fórum svo út að borða á Rauðará. Maturinn þar var æðislegur, ég fékk mér humarsúpu í forrétt og lamb í aðalrétt nammmm. Enduðum kvöldið heima hjá Mæju þar sem setið var við drykkju og spjall. Rosalega skemmtilegt kvöld :) Ég og Jenni vöknuðum svo í gærmorgun um 10 leytið og skelltum okkur í bakarí og í sund í blíðunni. Rosa fersk sko.
Annars er ég bara rosalega ánægð að það skuli vera komið vor, það er eins og maður sé að vakna úr dvala. Ég hef miklu meiri orku einhvern veginn það verður allt auðveldara eins og að vakna á morgnana. Það er bara tvennt ólíkt að þurfa að rífa sig upp í svartamyrkri eða þegar það er bjart.
Mig langar samt að benda sjónvarpsstöðvunum á eitt: DAGSKRÁIN Á FÖSTUDAGSKVÖLDUM SÖKKAR. Á ruv er það einhver óþolandi 30 ára Disney mynd og svo eitthvað glatað þar á eftir og á Skjá einum Djúpa Laugin. Úff boring. Maður vill nú geta haft það gott fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldum eftir langa vinnuviku.