mánudagur, maí 30, 2005

Vá hvað ég er þreytt eftir helgina enda búið að vera nóg að gera. Vorum með útskriftarpartý á laugardagskvöldið þar sem vinir hans Jenna komu. Íbúðin var full af fólki og það hefði ekki mátt vanta einn stól. Partýið heppnaðist mjög vel og það var rosa gaman. Ég skellti mér svo með liðinu í bæinn og var á vegamótum til að verða hálf fjögur !!!! Ég entist nú svona lengi af því við fengum góð sæti og það var ekki of troðið. Það var bara gaman að kíkja í bæinn en held ég nenni því ekki aftur var frekar þreytt í gær. Svo er líka svo mikill reykur, fíla ekki að anda honum að mér svona kasólétt. En þetta var mikið stuð og við ánægð með kvöldið.

þriðjudagur, maí 24, 2005


Minn finn a utskriftardaginn :)

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

mánudagur, maí 23, 2005

Þá er Eurovision geðveikin yfirstaðinn og mér finnst það frekar fyndið að Ísland hafi orið í 16. sæti í forkeppninni. Við vorum ekki einu sinni nálægt því að komast í aðalkeppnina. Rosalega var Gísli Marteinn tapsár þegar hann var að lýsa keppninni á laugardaginn. Ógeðslega pirraður ef nágrannalönd voru að gefa hvert öðru stig en samt var það alveg í lagi að Noregur gæfi Dönum 12 stig, við Norðmönnum 12 stig o.s.frv. Annars var ég alveg sátt við lagið sem vann, allt betra en að táknmálsklígjurnar frá Lettlandi myndu vinna. Fór í Eurovision partý til Þóreyjar þar sem við grilluðum (í skítakulda) og horfðum á keppnina, bara mjög gaman.

Ég er í fríi á morgun :) :) Hann Jenni er nefnilega að fara að útskrifast sem rafvirki :) Skrýtið samt að hafa útskrift á þriðjudegi en við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins og svo verður útskriftarpartý heima á laugardaginn.

fimmtudagur, maí 19, 2005

Jæja þá er bara komið að Eurovision. Undankeppnin í kvöld, spennó !!!! Vonandi kemst hún Selma áfram, það er ekkert gaman að fara í Eurovision partý á laugardaginn ef Ísland er ekki að keppa. ÁFRAM SELMA

Er frekar svekkt út í Franz Ferdinand, þeir frestuðu tónleikunum sem áttu að vera 27.maí til 2.september :( Ég verð bara að bíða þangað til. En þar sem ég er orðin tónleikaþyrst þá er ég að hugsa um að skella mér á Duran Duran 30.júní (komin 8 mánuði á leið reyndar en það hlýtur að reddast). Það verða örugglega geðveikir tónleikar :)

föstudagur, maí 13, 2005

Ég er búin að komast að því að erfinginn er stuðbolti. Allavegana ætlaði allt um koll að keyra í gær þegar ég fór að horfa á ABBA þáttinn. Í fyrsta skipti sá ég bumbuna á hreyfingu, hún gekk hreinlega í bylgjum :) Ótrúlega fyndið. ABBA klikkar ekki, kemur öllum í stuð. Frábær þáttur enda er ég mikill ABBA aðdáandi og ég væri sko miiikið til í að fara út og sjá Mama Mia.

Ég er ekki að vinna á laugardaginn þannig að það er löng helgi framundan :) :) :)

Lilypie Baby Ticker

mánudagur, maí 09, 2005

Æ ég er voða andlaus eitthvað, það er einhver mánudagur í mér.
Helgin var róleg og fín, var að vinna á laugardaginn til tvö og fór svo í bæinn í sund. Við skötuhjúin erum orðnir miklir "sundmenn" þegar það fór að vora. Erum mjög dugleg að prófa hina ýmsu heitu potta :) Ég ætla nú að reyna að fara að bæta nokkrum sundferðum við það ku víst vera ofsalega gott og hollt. Grilluðum þessar dýrindis lærissneiðar á laugardagskvöldið og buðum Eddu í mat, aðeins að losa hana frá námsbókunum. Í gær byrjuðum við daginn á sundferð í góða veðrinu og skruppum svo í IKEA ásamt hálfri Reykjavík.

Arrrg fór með bílinn í skoðun í morgun og þarf að koma með hann aftur af því að helv.... krókurinn er ekki réttur. OHHHHH smámunasemi segi ég :(

þriðjudagur, maí 03, 2005

Fyrirgefiði en á ekki að vera komið vor !!!!!! Öll fjöll hvít og hálka á köflum á leiðinni uppeftir í morgun :( Ég kann bara ekki við þetta. Langar helst að skella mér bara til Köben í 20 stiga hitann þar.

Fór í mæðraskoðun í morgun og það lítur allt mjög vel út og allt mjög eðlilegt. Nú er krílið um 1 kg (4 merkur)og maður er farinn að finna ansi vel fyrir því. Það er allt búið að vera að gerast síðasta mánuðinn, bumban þanist út og töluverð þyngdaraukning. Setti nokkrar bumbumyndir í albúmið.

Var ein heima í gær þegar Lost var í sjónvarpinu og ég hélt ég myndi deyja úr hræðslu. Horfði bara með öðru auganu. Þetta eru sko ekki þættir fyrir skræfur eins og mig, allavegana verð ég að hafa smá kompaní á meðan. Krípí þættir.