þriðjudagur, júní 28, 2005

Best að skrifa nokkrar línur!

Ég byrjaði helgina á því að fara í langþráða klippingu og labbaði svo út í áfalli yfir verðinu en ánægð með hausinn. Edda systir var að útskrifast sem líffræðingur og fórum við af því tilefni austur á Stokkseyri á Fjöruborðið og fengum okkur ljúffengan humar nammmmm. Geðveikt góður. Ég og Jenni enduðum svo kvöldið í afmæli hjá vini hans þar sem Singstar var í aðalhlutverki og ég varð að láta undan hópþrýstingi og taka þátt í liðakeppni (eina edrú manneskjan á svæðinu !!!). Mjög gaman. Fór ekki framúr fyrr en um 3 leytið á sunnudaginn enda vel þreytt eftir erfiða vinnuviku. Svo var það Batman á sunnudagskvöldið í lúxussalnum í Álfabakka. Fyrsta skipti sem ég fer í svoleiðis. Frekar þægilegir lazyboyar og popp og kók eins og maður vildi. Já og ég mæli með Batman, rosalega góð og Kristján Beil er frekar flottur.

Í gær bættist svo við lítil skvísa í vinahópinn þegar Magga og Sigfús eignuðust litla stelpu :) :) :) Ég er ekkert smá spennt að hitta þá litlu.

miðvikudagur, júní 22, 2005

Öruggan staaaaað til að veraaaaa ááááá !!!!! vá hvað þessi auglýsing gerir mig brjálaða :(

Er að fara á rúntinn út á Snæfellsnes í dag, best að kíkja svona einu sinni áður en ég fer í barneignafrí :)

Er búin að henda nokkrum nýjum myndum inn í myndaalbúmið.

mánudagur, júní 20, 2005

Ný vinnuvika hafin eftir rosalega fína helgi.

Við Jenni fórum beint upp í bústað á fimmtudagskvöldið og komum okkur vel fyrir. Vorum bæði dauðþreytt eftir vinnuvikuna og vorum farin í bólið fyrir 11 :) 17. júní skruppum við í bíltúr á Stykkishólm. Horfðum á skrúðgönguna þar og fórum í sund. Komum seinni partinn aftur í bústaðinn og grilluðum og höfðum það næs. Ég þurfti svo að skreppa í vinnuna á laugardaginn :( og það var algjörlega brjálað að gera. Náði að loka um hálf 3 og fór þá aftur upp í bústað og grillaðist þar í meiriháttar blíðu. Villi bróðir hans Jenna, Gunna kærastan hans og Grímur litli komu svo seinni part laugardags og grilluðu með okkur. Við sátum fram á kvöld og spiluðum, rosa gaman. Þau fóru svo heim á hádegi í gær en ég og Jenni nenntum ekki að hreyfa okkur fyrr en um 5 leytið. Lentum svo í umferðarteppu dauðans á Kjalarnesi, vorum 40 mín frá Kjalarnesi og inn í Mosó. Algjört rugl.

þriðjudagur, júní 14, 2005

Ahhh bara 4ja daga vinnuvika, ekki slæmt það :)

Helgin var róleg og fín. Ég held ég hafi samt sett met í svefni, kom mér aldrei framúr fyrir hádegi, mjög næs. Við keyptum okkur þetta dýrindis gasgrill á laugardaginn og vígðum það um kvöldið. Algjör snilld að eiga eitt svoleiðis. Fórum svo á Star Wars (loksins) og ég mæli með henni, frábær. Þótt ég vissi hvernig hún myndi enda þá var ég samt að vona innst inni að hann myndi ekki breytast í Svarthöfða, maður er svo bilaður ;)

fimmtudagur, júní 09, 2005

Við Jenni vorum að fá okkur nýja Coldplay diskinn og ég verð að segja að hann er snilld. Þeir klikka ekki þessir drengir. Mæli með honum.

Annars er voða lítið að frétta, maður bara vinnur og sefur beisiklí. Barnið stækkar og stækkar og sparkar í mig á alla kanta. Finn fyrir hverri einustu hreyfingu og stundum kemur kúla á magann og þá er það haus, eða löpp, voða krúttlegt :) Nú styttist óðum í erfingjann og við erum orðin voða spennt. Mér líður mjög vel sem betur fer en eina breytingin er að ég er meira þreytt eftir vinnudaginn en áður en það er samt allt í lagi ennþá.

Lilypie Baby Ticker

mánudagur, júní 06, 2005

Ég var að lesa það í Mogganum í morgunn að mannanafnanefnd væri búin að samþykkja karlmannsnöfnin Ljósálfur og Spartakus !!!! Ef ég eignast strák þá er ég að hugsa um að skíra hann Ljósálf !!!!! Ég heiti Ljósálfur Jensson !!!!!!!!!! HVAÐ ER Í GANGI, hver vill skíra börnin sín svona hroðalegum nöfnum?

Helgin var róleg og góð, var að vinna á laugardaginn og svo fórum við Jenni hérna út á Mýrar í sumarbústað hjá Möggu og Sigfúsi. Gunnhildur og Mikael voru þar líka með litlu stelpuna sína sem er algjört æði :) Gistum þar og höfðum það voða næs. Lágum svo bara í leti í gær og gerðum ekki neitt.

föstudagur, júní 03, 2005

Mér finnst ótrúlegt að það skuli vera kominn júní og árið hálfnað, páskarnir voru bara um daginn. Ég verð orðin mamma áður en ég veit af ;)

Aðþrengdar eiginkonur er svo mikill snilldarþáttur og hún Bree er tvímælalaust uppáhaldspersónan mín. Maður trúði því ekki að það gæti eitthvað komið í staðinn fyrir sex and the city á fimmtudögum. Þetta er reyndar eina kvöld vikunnar sem eitthvað er í sjónvarpinu annars finnst mér aldrei neitt í því.
Þar sem að það er kominn föstudagur þá ætla ég að biðla til RUV: VILJIÐ ÞIÐ HÆTTA AÐ SÝNA DISNEY MYNDIR Á FÖSTUDAGSKVÖLDUM PLÍÍÍS !!!!!

Annars segi ég bara góða helgi :)