Þá er lífið hægt og rólega að komast í fastar skorður hér á Strandveginum og regla að komast á litla manninn :) Hann vex og dafnar vel og er voða vær og góður. Ég hef lítið farið út úr húsi en núna getum við farið að kíkja í göngutúra með Kristján og viðrað okkur. Ég kíkti í Smáralind ein á föstudaginn og keypti mér kjól fyrir brúðkaupið hjá Örnu og Sigga. Það er æðislegt að geta farið að kaupa vernjuleg föt aftur, var alveg komin neð grænar af óléttufötunum. Annars erum við skötuhjúin búin að setja met í sjónvarpsglápi síðan við komum heim af fæðingardeildinni, fengum okkur 16 stöðvar gegnum breiðbandið og keyptum nýja Seinfeld seríu. Nóg sjónvarpsgláp hér á bæ sem sagt.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
mánudagur, ágúst 22, 2005
laugardagur, ágúst 13, 2005
föstudagur, ágúst 12, 2005
Já nú er lífið aldeilis breytt, erum komin heim með lítinn snáða. Klukkan er núna 04:46 og minn vill ekki sofna. Nú byrjar ballið :)
Búið er að nefna hann Kristján Ara.
Fórum á laugardagskvöldið upp á Akranes og kom hann í heiminn hálf sjö á sunnudagsmorgun. Við erum voða stoltir foreldrar og finnst hann fallegasta barn í heimi :) Ætlum að henda myndum af honum inn á barnaland sem fyrst.
miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Jæja nú er ég komin 4 daga framyfir og ekkert að gerast :( Þetta er alveg ótrúlega erfið bið og við erum hreinlega að springa. Fór í skoðun í gær og var látin í monitor af því ég er komin framyfir. Þar komu fram samdrættir og ég fékk nokkra mjög slæma verki en svo hurfu þeir og hafa ekki látið sjá sig síðan. Við fórum í göngutúr í Heiðmörk í gærkvöldi og var það mjög hressandi :) Það hafði þó ekki tilætlaðan árangur svo að nú verður þrammað á hverjum degi he he.
Verslunarmannahelgin var róleg og fín og mjög sérstök. Fyrsta skipti sem maður gerir ekki neitt, ekki einu sinni einn bjór drukkinn :) Jenni drakk einn bjór alla helgina enda verður hann nú að vera í ökufæru ástandi þegar kemur að þessu.
Á föstudagskvöldið fórum við á Eldsmiðjuna með Eddu afmælisbarni og þvílíkt hvað pizzurnar eru góðar þarna, nammmm. Laugardagurinn fór í tiltekt og um kvöldið grilluðum við og tókum svo dvd. Tókum Black Sheep með Chris Farley, guð hún er svo fyndin :) Chris Farley var algjör snilli. Tókum líka Old School með Will Ferrel, Vince Vaughn og Luke Wilson og hún er bara mjög fyndin. Ekki tókst okkur þó að lokka barnið út með hlátri :) Á sunnudaginn ákváðum við skyndilega að skreppa upp í bústað þar sem við höfðum það gott. Tókum myndina Napoleon dynamite og gáfumst upp, hún var bara allt of skrýtin fyrir minn smekk. Var búin að heyra að hún væri algjör snilld og bjóst einhvern veginn við fyndnari mynd. Horfðum bara á Wonderland með Val Kilmer í staðinn og hún er mjög góð. Þetta var sem sagt mikil gláp og hangs helgi :) Kláruðum svo verslunarmannahelgina með því að fara í Húsdýragarðinn með Villa, Gunnu og Grími litla og svo í kaffi til tengdó á eftir.
Nældi mér í Harry Potter bókina hjá Val og er núna djúpt sokkin í lestur.

