Hver segir að mjólkurfernur geymi ekki mikinn fróðleik? Allavegana uppgötvaði ég einn misskilning aftan á henni. Það var verið að útskýra orðatiltækið ,,að koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum" (þ.e. það kemur einhver óvænt algjörlega á skjön við atburðarásina eða eitthvað álíka). Ég hef alltaf haldið að þetta væri að koma eins og skrattinn úr sauðalæknum !!!!!! Já svona getur maður nú heyrt hlutina vitlaust ;)
Hef aðeins verið að vera að kynna mér hljómsveitirnar sem verða að spila á Airwaves. Er búin að hlusta aðeins á ástralska hljómsveit sem ber einkar skemmtilegt nafn, Architecture in Helsinki, The Fiery Furnaces sem er hljómsveit frá Bandaríkjunum og gaur sem heitir Jose Gonzales frá Svíþjóð. Allt mjög skemmtileg tónlist og ég vona að ég sjái öll þessi atriði. Ég er að springa úr tilhlökkun :)
Í sambandi við þetta klukk sem er í gangi í bloggheimum þá nenni ég ekki að svara því, sorrý. Ég er ekki dugleg við einhverja svona hluti. Er búin að reyna að finna upp 5 hluti sem ég get nefnt en gengur eitthvað illa. Það eina sem ég get sagt er að ég geymi alla plastpoka af einvherjum ástæðum !!!!! Jenni á hinn bóginn vill henda öllum plastpokum nema þeim sem nýtast sem ruslapokar ;)


