Þá er bara að koma að Airwaves og ég farin að hlakka mikið til. Ég stend í ströngu núna við mjólkursöfnun þar sem að drengurinn verður í pössun fimmtudags- föstudags- og laugardagskvöld. Það leynir sér ekki að það er smá kvíði líka að þurfa að fara svona mikið frá honum. En þetta reddast allt og ég hef bara gott af því að lyfta mér upp enda verður Kristján Ari í góðum höndum.
Ace of Spades með Motorhead er í spilun núna á Vh1, snilldarlag :) Er reyndar eina lagið sem ég hef heyrt með Motorhead, ætli þeir eigi ekki fleiri góð lög ??
Hvað er annars málið með þessa vísindakirkju. Samkvæmt slúðurblöðunum þá eiga konur í vísindakirkjunni að eiga börnin sín í algjörri ró og eiga ekki að sýna nein merki um sársauka !!!!!!! ÞAÐ ER EKKI HÆGT. Þetta er svo týpískt eitthvað sem einhver kall hefur ákveðið, þeir vita ekki hvernig þetta er og því ekkert mál fyrir þá að skipa konum að þegja meðan þær fæða börnin.

