miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Myndablogg

Her erum vid mædginin i studi enda tilefni til ad gledjast tar sem fyrsta tönnin leit dagsins ljos i gærmorgun :-)
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

mánudagur, nóvember 28, 2005

Nú er smá tónleikasyrpa búin í bili. Fórum fyrir viku síðan á White Stripes sem voru algjörir snilldartónleikar og svo voru það Sigurrós í gær. Vá segi ég bara, þetta voru geggjaðir tónleikar og ég fékk gæsahúð í ansi mörgum lögum. Það er engu líkt að heyra tónlistina þeirra spilaða live, miklu flottara en að hlusta á diskana. Við skötuhjúin erum búin að byrgja soninn upp á hljómsveitarbolum. Hann fékk rokkarabol á White Stripes tónleikunum og svo stóðumst við ekki mátið og keyptum á hann Sigurrósar samfellu og bol ;)
Engir tónleikar næstu helgi og svo eru það Antony and the Johnsons 10. des í Fríkirkjunni. Það verða örugglega geðveikir tónleikar, vá hvað ég hlakka til !!!!!

þriðjudagur, nóvember 22, 2005



Fræðatröll


Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.

Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.



Hvaða tröll ert þú?


He he þessi er góður :)

föstudagur, nóvember 18, 2005


Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Jenni hann á afmæli í daaaag !!!!!

Jenni og mamma hans eiga afmæli í dag og ég óska þeim báðum til hamingju með daginn. Mamma hans er fimmtug í dag og af því tilefni erum við að fara í bústað á Flúðum í kvöld og verðum alla helgina. Mér skilst að það sé búið að kaupa fullt af kræsingum og þetta á að vera algjör áthelgi, mmmmmmm ekki slæmt :) Næs helgi framundan og svo má heldur ekki gleyma því að við toppum helgina með White Stripes tónleikunum á sunnudaginn. Veiiiii hlakka ekkert smá mikið til !!!!!!!

mánudagur, nóvember 14, 2005

Ég rak mig á eitt um daginn sem mér fannst svoldið skrýtið. Það var verið að tala um hana Svövu í 17 og hvað hún væri glæsileg og ungleg. Mig minnir að það hafi staðið þar eitthvað á þessa leið "hún Svava í 17 er ótrúlega glæsileg kona, orðin fertug og lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en þrítug". Ég er alveg sammála því að Svava er mjög flott og smart kona EEEENNNNN hún lítur samt alveg út fyrir að vera fertug. Ég leyfi mér að staðhæfa þetta þar sem ég á bara eitt ár í þrítugt og mér finnst ég bara líta út fyrir að vera miklu yngri en hún. Sá líka svona komment um Madonnu, að hún væri nú að nálgast fimmtugt en liti ekki út fyrir að vera eldri en þrítug !!!! Halló hver skrifar þetta eiginlega, hlýtur að vera einhver rétt um tvítugt sem finnst þrítugt vera geðveikt gamalt.

Annars er ég í fílu í dag, fór til tannlæknis í morgun og á eftir að fara einu sinni enn. Hefði getað farið til útlanda fyrir þennan tannlæknakostnað. Nú verður sko tannþráðurinn á lofti á hverju kvöldi takk fyrir :)

mánudagur, nóvember 07, 2005


Hann Kristján Ari er 3ja mánaða í dag, ferfalt húrra fyrir honum, húrra, húrra, húrra, húrraaaaaa !!!!!

Annars var mikið húllumhæ í Borgarnesi í gær en hann Valur litli bróðir varð 17 ára og langþráð bílprófið var í höfn. Hann var búinn að bíða svo lengi, veit ekki hvenær hann byrjaði að telja niður. Svona er að eiga afmæli seint í árinu, ég sagði honum nú bara að hugsa til mín þegar biðin var orðin óbærileg, það er varla hægt að eiga afmæli seinna á árinu ;) Úff ég man hvað ég þurfti alltaf að bíða eftir öllu, seinust að fá bílpróf, seinust til að mega fara í ríkið o.s.frv. Í dag er þetta aftur á móti hið besta mál. Ég er t.d. ennþá bara 28 ára en flestir vinir mínir eru orðnir 29 ára og verða þrítugir áður en langt um líður, he he. Alltaf að líta á björtu hliðarnar krakkar mínir. Svo finnst mér líka rosa gaman að eiga afmæli á jólunum, fæ fullt af pökkum með fimm daga millibili :)

fimmtudagur, nóvember 03, 2005


Já og White Stripes bara á leiðinni á klakann !!!!! Ég er ekkert smá spennt, maður er búinn að vera að vona heillengi að þau myndu koma. Þetta er nú meiri tónleikavertíðin núna, Airwaves um daginn, White Stripes 20. nóv, Sigurrós 27. nóv og svo Anthony 10. des.

Það var meiriháttar gaman á Airwaves og gekk bara vel að passa Kristján Ara þrátt fyrir mótmæli hans gegn pelanum ;) Það sem stóð upp úr að mínu mati var sænski trúbadorinn Jose Gonzales mér fannst hann æði, svo einlægur og yndislegur eitthvað og með eina flottustu söngrödd sem ég hef heyrt. Einnig voru Dáðadrengir, The Mitchell Brothers, The Fiery Furnaces og The Zutons frábær.

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Þetta er nú meira lasarusa heimilið, við Kristján liggjum bæði :( Ég fékk hálsbólgu og hita og vibba á fimmtudaginn sem endaði í svaka kvefpest og ég dauðhrædd um að smita Kristján Ara. Á sunnudagskvöldið var hann kominn með hor og ég mældi hann en hann var ekki með hita en kl 2 um nóttina vaknaði hann kjökrandi og svoleiðis logandi heitur. Þá var hann kominn með 40 stiga hita greyið. Við hringdum á bráðamóttöku barna og var sagt að koma með hann. Þar voru gerðar allskonar rannsóknir á honum sem hann var sko ekki sáttur við. Við vorum þarna alla nóttina og komum svo heim um 3 leytið í gær. Allar rannsóknir komu vel út þannig að hann er með sömu pest og ég, ekki með neina bakteríusýkingu, inflúensu eða RS veiru, sem betur fer. Þau eru víst gjörn að rjúka upp í svona mikinn hita þegar þau eru svona lítil. Þetta var frekar óhugnalegt og okkur leið ekki vel. Núna liggur hann bara upp í rúmi með stíflað nef og slappur. Á meðan er mamma hans hundleiðinleg að stinga hitamæli og stílum í rassinn á honum og sjúga horið úr nefinu og setja nefdropa. Allt þetta finnst honum miður skemmtilegt og skil ég hann vel :) Nú verðum við bara inni og hugsum vel um okkur og vonum að þessi vibbapest líði hjá sem fyrst.