
GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMAN !!!!
Þetta eru búnir að vera rosalega fínir dagar og vægast sagt mikið borðað :) Við vorum á aðfangadagskvöld í Borgarnesi og fengum ljúffengan hamborgarahrygg í matinn. Eftir borðhaldið var ráðist á pakkaflóðið sem var í algjöru hámarki núna. Eins og sést á myndinni er ég umkringd pökkum. Ég fékk þó nokkrar góðar gjafir en Kristján á nú meirihlutann af pökkunum á myndinni. Hann fékk rosalega mikið af flottum gjöfum :) Við gistum í Borgarnesi og fórum svo í bæinn á jóladag. Á jóladag var svo hangikjög hjá ömmu og afa og eftir það fórum við til tengdó og fengum ís og kaffi. Í gær vorum við ásamt bróður hans Jenna og fjölskyldu heima hjá tengdó. Við fengum ljúffengan humar í forrétt og svo voru tartalettur með ýmsu kjöti í. Mjööög gott.
Við Kristján erum bara að hanga í dag og Jenni er í vinnunni. Svo á ég afmæli á fimmtudaginn jibbííí. Verð 29 ára þann 29. !!!!! Seinasta skipti sem ég verð tuttugu og eitthvað ;)

