Já það er bara kominn alvöru vetur. Mér finnst alltaf svolítið gaman þegar allt er á kafi í snjó og ég vona bara að hann haldist svo ég komist eitthvað á skíði í vetur :)
Við fórum með Kristján Ara í ungbarnasund á laugardaginn og það var ótrúlega gaman, fullt af litlum krúttum með foreldrum sínum. Við erum í sundi í innilauginni í Breiðholtslaug og ég fékk þvílíkt flassbakk þegar ég kom þangað inn. Man svo vel eftir því þegar við vorum þarna í skólasundi. Er ekki alveg viss hversu gömul ég var en ég hef ekki verið alveg synd því ég man eftir því að vera að synda með svona gulan einhvern veginn kút á bakinu (æ það kom svona hvítt undir magann og svo tveir gulir hólkar á bakinu) og með kork fyrir framan mig að æfa fótatökin. Breiðholtslaugin minnir mig líka alltaf á þegar við vinkonurnar vorum að fara í sund hjólandi úr Seljahverfinu og um leið og við komum inn í Fellin fór hjartað að slá hraðar og við drifum okkur eins og við gátum til að lenda ekki í Fellavillingunum, ha ha ha. Ég man ennþá hvað maður var hræddur og eflaust að ástæðulausu, það var alltaf verið að hræða mann með einhverjum sögum sem maður trúði :)
Eftir sundið brunuðum við í Borgarfjörðinn í bústaðinn og höfðum það notalegt. Það var allt á kafi í snjó og golfinn komst ekki að bústaðnum svo að mamma og pabbi komu og redduðu málunum á jeppanum. Jenni og pabbi voru heillengi að koma bílnum úr skaflinum en ég held að þeim hafi nú ekki fundist það leiðinlegt að standa í þessu.
Amma á Snorrabraut og Hrafn eiga afmæli í dag og óska ég þeim til hamingju með daginn :)


