
Kristján Ari varð 7 mánaða fyrir tveimur vikum !!!!! Hann hélt upp á þau tímamót með því að skríða og standa upp við hluti og er núna á fleygiferð út um allt :)
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, byrjuð að vinna á fullu og nóg að gera þar og svo eyðir maður frítímanum með fjölskyldunni.
Helgin var mjög notaleg og róleg, Anna Katrín bauð okkur í mat á laugardagskvöldið og fengum þar afbragðsgóðan mat eins og henni er einni lagið. Kristján Ari var í banastuði og fékk sér svo blund í burðarúminu sínu.
Gærdagurinn fór í það að pakka niður í kassa, við þurfum að flytja næstu helgi. Þurfum að afhenda íbúðina 1.apríl. Nóg að gera hjá okkur núna !!!! Úff hvað maður á mikið af drasli, það er ótrúlegt. Það virðist endalaust verk að koma þessu öllu í kassa!
