Þá er páskafríið búið og við höfðum það mjög notalegt upp í bústað. Við fórum strax eftir vinnu hjá mér á miðvikudaginn og komum tilbaka aftur á sunnudag. Þetta var fín afslöppun og mikið étið. Það komu fullt af gestum til okkar á skírdag. Tengdó kíktu í kaffi um daginn og komu færandi hendi með páskaegg og sumargjöf handa Kristjáni Ara. Hann fékk rosa flott dót í sandkassann, skóflu og fötu og svoleiðis og vakti það mikla lukku hjá litla stubbnum. Þórey, Eysteinn og Trausti komu seinni partinn og svo komu Edda og Benni um kvöldmatarleytið og við grilluðum öll saman. Þórey og co keyrðu í bæinn um kvöldið eftir æsispennandi Trivial og Edda og Benni gistu og var setið aðeins frameftir. Ég fór reyndar fyrst í rúmið því ég vissi vel að sumir myndu vakna snemma :) Föstudagurinn fór bara í hangs í bústaðnum en á laugardeginum fórum við í smá bíltúr um sveitina og komu mamma og pabbi svo í kaffi. Á sunnudaginn var svo páskalambið hjá ömmu og afa í Kópavoginum og var mjög gaman að hitta alla familíuna.
Aftur frí á fimmtudaginn, lúxus maður :)
