þriðjudagur, maí 16, 2006

Það er alltaf gott þegar það er kominn þriðjudagur. Mánudagarnir eru einhvern veginn alltaf hálfsúrir. Helgin var stórskemmtileg hjá mér. Á laugardaginn var vinnupartý í Stykkishólmi, eiginlega kveðjupartý fyrir eina sem er að hætta. Hittumst úr öllum útibúum og byrjuðum á því að fara í siglingu um Breiðafjörðinn. Það var rosalega gaman og ekki skemmdi veðrið fyrir, sól og lítill vindur. Við sigldum þarna um suðureyjarnar og skoðuðum fuglalífið í eyjunum, sáum meira að segja arnarpar. Ég hef aldrei séð haförn og vááá hvað hann er flottur og rosalega stór. Það er alltaf sama arnarparið sem að verpir þarna ár eftir ár og þeir voru svo spakir, ekkert að kippa sér upp við risastórt skip við nefið á þeim. Því miður þá virðist sem varpið hjá þeim hafi misfarist þetta árið, mér fannst það mjög sorglegt. Þegar líða tók á ferðina þá var farið að veiða og ég smakkaði ferskan skelfisk beint úr sjónum og hann bragðaðist bara mjög vel. Að lokum var svo dýrindis hlaðborð með lunda, laxi kjöti og ýmsu fleira. Rosalega góður matur. Eftir siglingu var partý og mikið stuð og að lokum kíktum við aðeins á pöbbinn. Við lögðum svo af stað í Borgarnes um 2 leytið og ég var komin upp í rúm rétt fyrir hálf 4. Frábær dagur alveg og ég mæli með þessum eyjasiglingum. Næsta mál á dagskrá er að sigla með Baldri yfir og stoppa í Flatey, það held ég að sé alveg brilljant.

föstudagur, maí 12, 2006

Já haldiði ekki bara að mín sé byrjuð að prjóna !!!! Skráði mig á prjónanámskeið hér í bæ sem samstarfskona mín er að halda og er byrjuð á lopapeysu fyrir Kristján Ara. Ég er nú bara rétt byrjuð en ég vona svo sannarlega að ég nái að klára hana. Vá hvað ég verð stolt :)

Ég hlakka til þegar þessar kosningar eru búnar, stjórnmálamenn í kosningabaráttu eru svo pirrandi og klígjulegir. Ohhhh. Ég vil líka hneykslast á hugmyndinni um að flytja Árbæjarsafn út í Viðey!!!!! Mér finnst það fáránlegt, Árbæjarsafn er fínt þar sem það er (þar sem gamli Árbærinn er). Hvað á svo að gera þegar búið er að flytja safnið út í eyjuna, nota landið undir byggingar? Mér finnst vera peningalykt af þessu. Æ það koma alltaf upp einhverjar svona hugmyndir sem eiga að vera svo svakalega fínar í kringum kosningar. Ég vona svo sannarlega að það verði ekki af þessu.