föstudagur, júní 30, 2006

8 DAGAR Í SUMARFRÍ !!!!

Alveg yndislegt veðrið þessa dagana !!!!! Hvar er sumarið segi ég nú bara. Ef það kemur einn góður dagur þá þurfa alltaf að koma svona 7 rigningadagar á eftir :( En sjáiði bara til, það verður bongóblíða laugardaginn 8. júlí þegar ég kem úr vinnunni kl 14 og byrja sumarfríið mitt.

Kristján Ari tók fyrstu skrefin í gær og mikið var ég stolt ;) Ég prófaði að sleppa honum á gólfinu og hann tók 3 skref til mín. Ég bjóst ekki við því og mér brá frekar mikið og æstist öll upp og þegar Kristján sá hvað mér fannst þetta frábært þá hló hann og hló. Hann endurtók þetta svo nokkrum sinnum í gærkvöldi. Ég sendi Jenna strax sms, sem er btw á Hróarskeldu helvískur, og hann var svoldið spældur að missa af þessu. Hann var ákkúrat að horfa á Guns'n Roses og hringdi svo í mig og leyfði mér að heyra í Axl þenja raust sína. Ég heyrði ekkert hvaða lag þetta var en það var ekki um að villast að þetta var sko röddin hans Axl.

Ég er búin að prjóna lopapeysuna á Kristján, ganga frá öllum endum og falda. Á bara eftir að setja rennilásinn :) Úff ég er svo stolt af sjálfri mér.

þriðjudagur, júní 27, 2006

11 dagar í sumarfrí !!!!!!!

Kristín Dóra litla vinkona okkar á afmæli í dag. Hún er orðin eins árs skvísan.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KRISTÍN DÓRA !!!!!

Ég fór á MR reunion í tilefni 10 ára stúdentsafmælisins á föstudaginn. Það var frekar fyndið. Mér leið bara eins og ég væri komin í MR aftur. Reunionið var haldið í Viðey og heppnaðist bara mjög vel. Skemmtilegur staður og góður matur. Var svoldið vandræðalegt fyrst en þegar fór að líða á kvöldið þá komst liðið í meira stuð og undir lokin voru allir bara í banastuði ;)

miðvikudagur, júní 21, 2006

Æ maður er svo aktífur bloggari eitthvað !!!!!!

Ég held með Ástralíu á HM, loksins eitthvað lið sem ég virkilega held með. Þeir verða að vinna Króatana á morgun, algjört möst. Annars spái ég því að Argentína verði heimsmeistari, vinni Þjóðverja í úrslitaleiknum.

Eftir 17 daga verð ég komin í sumarfrí, veiiiiiii. Eins gott að húsið verði tilbúið svo að ég geti haft það gott með syninum í fríinu þar. Við erum alveg að springa úr spenningi, getum bara ekki beðið eftir að komast í raðhúsið okkar. Þetta lítur allt ljómandi vel út og verður bara rosa flott held ég. Fólkið á hægri endanum (nr 29) er flutt inn og við kíktum í heimsókn þangað í síðustu viku. Þau eiga fimm litla hunda sem að tóku allir gjammandi á móti okkur, frekar sætir. Kristján var mjög hrifin af hundunum og langaði að grípa í þá alla. Við fengum smá fíling fyrir því hvernig íbúðin mun líta út tilbúin og okkur leist bara mjög vel á.