1 DAGUR Í SUMARFRÍ !!!!!!
Kristján Ari er 11 mánaða í dag :) Litli gaurinn minn er bara alveg að verða 1 árs, mér finnst það eiginlega ótrúlegt.
Ég kláraði lopapeysuna í gær, sat fram eftir kvöldi í hannyrðabúðinni og saumaði rennilásinn í. Ég er mjög þakklát henni Erlu fyrir að fá mig á prjónanámskeiðið og nú er ég bara orðin óð ;) Ætla að skreppa til þeirra í búðina á mánudaginn og kaupa lopa í peysu á mig. Mig er búið að langa í lopapeysu í mörg ár svo að það er sko kominn tími til að ég reddi mér einni slíkri.
Ahhh svo er ég á leiðinni í tveggja vikna sumarfrí mmmmmmm. Eins gott að við fáum húsið bráðum !!!!!!
