þriðjudagur, ágúst 15, 2006


Kristján Ari varð 1 árs 7. ágúst síðastliðinn og við héldum upp á daginn í mikilli blíðu austur á héraði. Við vorum í bústað rétt fyrir utan Egilsstaði inn í fallegum skógi. Mamma, pabbi og Edda komu á afmælisdaginn og gistu eina nótt. Við vorum frá sunnudegi til föstudags í bústaðnum og fengum besta veðrið á 1 árs afmælinu, rúmlega 20 stiga hiti og sól, alveg meiriháttar. Við höfðum það rosalega notalegt þessa viku og ferðuðumst aðeins um svæðið, fórum m.a. á Kárahnjúka og keyrðum niður á firðina. Á föstudaginn keyrðum við í Skaftafell og gistum þar eina nótt. Þar var algjör blíða og jökullinn skartaði sínu fegursta. Mér finnst Skaftafell einn fallegasti staðurinn á landinu og alltaf jafn yndislegt að koma þangað.

Annars eru 15 dagar þangað til Spatúlur halda til Skotlands í mikla ævintýraferð, úff það verður nú gaman.