ÉG ER MÆTT Á SVÆÐIÐ !!!!!!!
Hérna í vinnunni erum við með stillt á Bylgjuna allan daginn svo að það eru svona 10-15 lög sem eru í stanslausri spilun á hverjum tíma. Þessi lög eru spiluð svo oft á dag að maður er kominn með upp í kok eftir smá tíma, þetta kallast að nauðga lögum. Það eru þrjú lög sem eru spiluð MJÖÖÖÖG oft sem ég hata. Þetta eru hrikalega léleg lög með afleitum texta. Eitt lagið er með Regínu Ósk (sem er fín söngkona sko)og þar segir hún: ,, það er allt í góðu lagi, það er allt í fínu lagi" í annarri hverri setningu. Ekki mjög hugmyndaríkur sá textasmiður. Lag númer tvö er líka svona endurtekningalag og er með Stebba og Eyva. Þar er sagt: ,, góða ferð, góða ferð, góða ferð" ansi oft. Þriðja lagið er svo með Bríeti Sunnu og Stefáni Hilmars (held ég alveg örugglega) og er bara hreint út sagt leiðinlegt. Ég er mikill aðdáandi Stefáns Hilmarssonar og finnst bara mjög leiðinlegt þegar hann misstígur sig svona og syngur í tveimur vondum lögum samtími.
Annars gengur lífið sinn vanagang í Borgarnesi og við erum loksins flutt inn AFTUR. Búumst ekki við meiri katastrófum á næstunni. Mér var farið að líða eins og Daníel sullskó á tímabili. Muniði ekki eftir honum, hann bjó á efri hæðinni í húsinu sínu af því að bærinn var á floti og sat á svölunum og sullaði í vatninu. Mig minnir að bærinn hafi farið á flot af því að KANÍNAN í einu húsinu ætlaði í bað en fór svo í burtu og gleymdi að skrúfa fyrir !!!!! Barnaefni getur verið svo steikt.
