Jæja það hlaut að koma að því, sonur minn er kominn á einhvern sjálfstæðisaldur. Ef hann fær ekki að borða sjálfur þá hristir hann hausinn og lætur í sér heyra. Einnig er einhver smá frekja að læðast að honum, ef við ætlum að taka eitthvað af honum sem hann má ekki hafa þá er bara togað til baka og öskrað :/ Svo finnst mér þetta frekar fyndið og það er heldur erfitt að brosa ekki þegar hann lætur svona. Ég passa mig samt að brosa ekki því einhvern veginn verður hann að læra hvað má og má ekki ;)
Óvissuferðin á laugardaginn var bara mjög fín. Vorum niðri í Bæjarlind á skrifstofunni um morguninn á hópeflisnámskeiði og fórum í leiki og svona. Eftir hádegi var svo farið austur á Þingvelli og við skoðuðum Gjábakkahelli. Fórum í spes galla og vorum með hjálm með ljósi á. Á miðri leið þá slökktu allir á ljósunum og þvílíkt myrkur hef ég aldrei upplifað. Ég lokaði bara augunum því að ef þau voru opin þá voru augun á fullu að reyna að fókusera á eitthvað, frekar skrýtið. Þetta var mjög skemmtilegt. Næst var ferðinni heitið í Hvalfjörðinn á Hótel Glym og þar fórum við í pottinn og fengum bjór, svo var fordrykkur og matur. Mamma og pabbi voru svo almennilega að skjótast eftir mér svo að ég komst heim til mín, var komin heim um 23 leytið. Fínasti dagur bara :)
16 DAGAR Í FRANKFURT !!!