Ég vil bara þakka öllum kærlega fyrir sem komu í afmælisveislu okkar Jenna á laugardaginn. Takk fyrir komuna og takk fyrir allar þessar fallegu gjafir. Við áttum ekki til orð á sunnudaginn þegar við vorum að taka þær upp :)
Veislan heppnaðist bara mjög vel og svo var mikið fjör í bænum á eftir. Við vorum nú ansi þreytt á sunnudaginn, vægast sagt. Kristján Ari var nú eitthvað fúll út í okkur fyrir að hafa látið hann í pössun svona lengi og hann vildi sko fá sína athygli á sunnudaginn. Sem hann náttúrulega fékk, það þýddi ekkert fyrir okkur að hanga í einhverri þynnku.
Við fengum myndirnar frá ljósmyndaranum í gær og þær eru alveg æðislegar. Fullt af myndum og allar frábærar.
