6 DAGAR TIL JÓLA !!!
Við Jenni skelltum okkur í bæinn í gær og keyptum allar jólagjafirnar á einu bretti. Núna eigum við bara eftir að kaupa á hvort annað :)
Kristján Ari var settur í pössun hjá mömmu á pabba meðan við fórum í geðveikina í Kringlunni. Þau komu svo með hann í bæinn seinni partinn og við fórum í laufabrauð hjá Kristbjörgu frænku. Ég skar eitt stykki sem var skelfilega illa gert og Jenni skar sitt fyrsta laufabrauð og tókst miklu betur upp hjá honum en mér. Kristján Ari fór svo til tengdó og var þar í nótt. Dagmamman er komin á Kanarí svo að þessi vika er svoldið pússluspil. Ég fékk svo mikinn móral að skilja hann eftir í bænum að ég hélt ég myndu ekki sofna, fannst ég alveg hræðileg mamma. Ég heyrði svo í tengdó í morgun og þá var minn bara í stuði og skemmti sér vel, var aðeins búinn að spyrja um okkur en var alls ekkert leiður. Jenni kemur svo með hann í kvöld og við verðum feðginin saman í fríi á morgun. Ætlum m.a. í bæinn að hitta Möggu og Kristínu Dóru enda orðið ansi langt síðan síðast.

