Þetta var nú meiri bömmerinn í gær fyrir Íslendinga, ég hélt ég myndi fá hjartaáfall af spenningi. Ég horfði á leikinn í pörtum, hafði ekki taugar í hann allan. Sem betur fer held ég ekki með neinu liði í neinni íþrótt, ég væri alltaf á tauginni.
Í dag er 31. janúar og mamma á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið mamma !!!
Foreldrarnir eru að spóka sig á Ítalíu á skíðum og eru þar víst í sól og blíðu og geðveiku færi. Ég er orðin nett græn í framan af öfund !!!!
