mánudagur, febrúar 26, 2007

Ég er hægt og rólega að breytast í vélmenni hérna í vinnunni. Harðsperrurnar læðast að mér núna eftir því sem tíminn líður. Fór sko á fimleikaæfingu í gær og hrikalega var gaman. Ég get sko ekki beðið eftir næsta sunnudegi. Ég mætti kl fjögur í Gerplu og hitti þar Auði og Siggu Eyrúnu sem var mjög gaman, við vorum nú allar í Ármanni í den. Hugsa að ég skelli mér í heita pottinn í kvöld :)

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Ég var búin að skrifa heilmikla bloggfærslu um öskudaginn en publishaði hana óvart á Spatúlusíðunni, en ég ætla að henda henni líka hérna :O)

Það er mikill söngur og gleði hér í apótekinu í dag. Við fáum allskonar verur hingað til að syngja fyrir nammi. Lagaúrvalið er kannski ekki mikið, helst er sungið Krummi krunkar úti, Bjarnastaðabeljurnar og litalagið. Lagið um Bjarnastaðabeljurnar endar aðeins öðruvísi en hérna í den, það var ,, það gerir ekkert til, það gerir ekkert til, hún kemur um miðaftanbil" en núna er það ,, það gerir ekkert til, það gerir ekkert til, hún skrapp bara aðeins á klósettið". Mér finnst þau frekar krúttleg þessir krakkar og ótrúlegt hugmyndaflug í búningunum.Ég man nú í mínu ungdæmi, þá fékk maður ekkert nammi í fyrirtækjum !!!! Maður fór niður í Mjódd og náði restinni af slá köttinn úr tunnunni en náði aldrei neinu nammi og hélt svo svekktur heim á leið.

Kristján Ari fór nú ekki í neinn búning í dag en kannski á næsta ári en þá verður hann kominn á leikskóla. Ég var nú samt að hugsa um að senda hann í Superman náttfötunum sínum en hætti svo við, kannski ekki við hæfi að koma í náttfötunum til dagmömmunar :)

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Við redduðum okkur fyrstu 11 þáttunum af Heroes og tókum maraþongláp á sunnudagskvöldið. Ég veit ekki hvað við gerum núna, verðum að redda okkur meira annars þurfum við að bíða í margar vikur eftir að 12.þáttur komi í sjónvarpið. Maður verður alveg húkkt á þessu.

Við fórum á árshátíð Lyfju á laugardaginn og það var bara svaka fjör. Vorum með hótelherbergi sem var frekar næs. Það var ansi þægilegt að geta bara farið upp að sofa í staðinn fyrir að vesenast í leigubíl eitthvert út í bæ :)

Annars var ég að koma mér í fimleika hjá Gerplu og ég er að springa úr spenningi. Það var allt fullt í hópnum, sem er svona oldies hópur, en ég fæ að troða mér með á sunnudögum :) Auður gamla skólasystir og fimleikaæfingafélagi er búinn að vera þarna í einhvern tíma og var að blogga um þetta. Ég var alveg græn af öfund að lesa um þetta þannig að ég hafði samband við hana og hún benti mér á að tala við þjálfarann og hún var svo almennileg að hleypa mér að :)

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Ég horfði á þáttinn Jörðin á RUV í gær og fjallaði hann um lífið á hinum ýmsu sléttum jarðarinnar. Alveg magnaður þáttur og þvílíkar myndir sem náðust. Ég táraðist reyndar tvisvar með stuttu millibili. Annað skiptið var þegar úlfur hleypur á eftir hreindýrahjörð, einn kálfurinn verður viðskila móður sína og úlfurinn nær honum (snökt), hitt skiptið var þegar rebbi náði litlum gulum sætum gæsaunga og murkaði úr honum lífið í kjaftinum (snökt, snökt). Næsta skot var reyndar þegar hann gefur yrðlingunum ungann í matinn þannig að þetta sýndi manni hringrás lífsins. Eins dauði er annars brauð osfrv. Mæli með þessum þáttum, maður situr gjörsamlega límdur yfir skjánum þrátt fyrir nokkur tár á hvarma. Sleit mig reyndar frá honum með herkjum kl 9 til að horfa á Heroes, úff hann er nú hrikalega spennandi. Get engan veginn beðið fram á næsta mánudag, verð að redda mér seríunni !!!