7 DAGAR Í PÁSKAFRÍ !!!!!!!
Guð hvað það verður yndislegt að komast í smá frí.
Var á faraldsfæti í vinnunni í gær. Fór vestur á Reykhóla og í Búðardal að kíkja á lyfjabúr dvalarheimilanna. Veðrið var yndislegt og mjög fallegt að keyra. Á Barmahlíð á Reykhólum var tekið á móti mér með kaffi og kleinum og svo mátti ég ekki fara fyrr en ég var búin að fá mér smurt brauð og djús. Að lokum fékk ég svo kleinur í poka með mér heim, yndislega heimilislegt :)
Var komin tiltölulega snemma tilbaka í Borgarnes og notaði tækifærið, þar sem ég var með afleysingu, og sótti Kristján snemma til dagmömmunar. Við fórum út að leika okkur og kíktum svo í kaffi til mömmu. Þvílíkur lúxus ef maður gæti hætt 3-4 í vinnunni á daginn !
