Ahhh frídagur á morgun, lúxus maður :)
Fín helgi liðin og góð tilbreyting að fá þetta fína veður.
Fórum fjölskyldan í sund á laugardaginn eftir vinnu hjá mér og það var mjög gaman. Kristján Ari var í essinu sínu og vildi ekkert fara upp úr. Ætlaði að hlaupa út úr sturtunni og fara í "bað attur" :) Um kvöldið fór ég í gæsun hjá Ingu Lilý og það var mjög gaman.
Í gær komst ég svo loksins aftur á fimleikaæfingu. Ég var svoldið stressuð, var alveg viss um að ég myndi vera hrikalega léleg. En viti menn (verð bara að monta mig), ég tók bara framförum og gerði ein araba streit út í gryfju. Ekkert smá stolt sko :) Það voru alveg ótrúlega fáir á æfingunni svo að það var stanslaus keyrsla allan tíman enda er ég nett þreytt í líkamanum í dag.
Í bílnum á leiðinni hlustaði ég á Ladda safndiskinn, Hver er sinnar kæfu smiður. Guð hvað hann er fyndinn, ég dýrka þessi Ladda lög. Sérstaklega þegar lagið "hvítlaukurinn" kom þá gat ég varla keyrt. "Sparaðu hvítlaukinn Hallgrímur miiinn...... Snilld.
