Kvef, kvef, kvef og aftur kvef :(
Ég er brjáluð, fékk kvef og hálsbólgu á sunnudaginn og er búin að vera eins og tuska alla vikuna. Ég fékk þetta ógeð fyrir mánuði síðan og mér finnst þetta ekki sanngjarnt. Skellti mér á fimleikaæfingu í gærkvöldi í algjörri afneitun fyrir þessu kvefi og var náttúrulega ógeðslega léleg. Ekkert þol, ekkert úthald og engina geta. OHHHH. Nú er ég búin að kaupa mér vítamín og ætla að vera duglegri að borða ávexti og byrjaði átakið á því að fá mér plómur eftir hádegismatinn.
Kristján Ari er allavegana orðinn hress og laus við bólurnar. Hann er ánægður með það, komst loksins til dagmömmunnar í morgun. Við ætlum að skella okkur með hann í Þjóðleikshúsið á morgun að sjá Skoppu og Skrítlu. Ég hlakka mikið til, það verður gaman að sjá hvernig Kristján fílar þetta. Hann elskar allavegana DVD diskinn með þeim.