Það er allt á fullu hjá okkur núna, Jenni er sveittur heima að pakka á meðan ég er í vinnunni. Gámurinn komin og við flytjum til mömmu og pabba um helgina. Gámurinn fer í bæinn á miðvikudaginn, út úr landinu föstudaginn og kemur svo til Kaupmannahafnar viku seinna, þann 13. júlí. Jenni fer út 11. júlí og verður því í tómri íbúð í tvo daga. OMG þetta er bara að gerast, ég trúi því ekki. Hrikalega er tíminn fljótur að líða. Ég á bara eftir að vinna í rúman mánuð og svo er ég farin af landi brott. Það er nú komin tilhlökkun í kroppinn, þetta leggst bara vel í okkur að búa í Kaupmannahöfn. Ég vooona að ég þurfi ekki að leita að vinnu of lengi, það er eini óvissuþátturinn. Maður reddar sér þá bara einhvern veginn öðruvísi, fer bara að vinna í búð eða e-ð.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Hvað leynist í iðrum jarðar?
fimmtudagur, júní 28, 2007
þriðjudagur, júní 05, 2007
Ég trúi því bara ekki að það sé kominn júní !!!! Hvert fór maí eiginlega? Hann hvarf bara á ógnarhraða fram hjá mér. Reyndar er brjálað að gera í vinnunni sem gæti útskýrt tímahröðunina. Nú er ég byrjuð að huga að starfslokum og er að vinna í öllum lausum endum svo ég geti nú skilað þessu af mér sómasamlega.
Ég er LOKSINS búin að fullklára CV-ið mitt og umsóknarbréfið, það er nú meira sem það tók mig langan tíma. Er búin að senda umsókn á einn stað og svo er bara að drífa í þessu og dúndra umsóknum út um allt og krossa svo fingur :)
Draumurinn er að koma út og fá allavegana mánuð til að slaka á og koma Kristjáni inn á leikskóla og byrja svo að vinna. Ég panta sól og sumaryl í Kaupmannahöfn seinni part ágúst.
Er búin að henda fullt af nýjum myndum inn á barnaland, endilega kíkið og það væri gaman að fá kvittun í gestabókina líka :)
