föstudagur, janúar 25, 2008

Kristján og Grettir eru miklir vinir :)

Það var kominn tími til að ýta þessari lús neðar á síðuna og setja inn skemmtilegri mynd :) Þarna sjást þeir vinir Kristján Ari og Grettir (sem hann fékk í jólagjöf frá Kidda vini hans Jenna). Kristján Ari les fyrir Gretti, svæfir hann og ýmislegt fleira. Mjög fyndið að fylgjast með því.

Á okkar heimili herja veikindi :( Jenni er búin að vera veikur síðan á mánudaginn og Kristján síðan á miðvikudaginn. Ég er búin að vera á mörkunum í rúma viku mætti svo í vinnuna í gær hundslöpp og er þ.a.l. búin að liggja eins og skata í dag. Kvef, hálsbólga, beinverkir, mikið fjör sem sagt. Ég vona að ég verði betri á morgun þar sem ég þarf að vinna en það er sem betur fer bara milli 9 og 13.

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Hérna er mynd af hinu geðslega kvikyndi lúsinni !!! Það er greinilega lúsafaraldur í Vesterbro hverfinu því að ég er búin að vera að selja lúsameðöl grimmt. Ég fæ alveg hroll, get ekki hugsað mér að þurfa að standa í þessum nokkurn tíman. En með barn á leikskólaaldri eru líkurnar alveg þónokkrar að maður lendi í þessu. Til að kóróna allt saman í dag þá kom kona alveg í öngum sínum inn í apótekið og sagðist halda að hún væri með lús og hvort ég vissi nokkuð hvernig þær litu út. Ég sagðist nú vera þokkalega viss um það. Haldiði að hún hafi ekki skellt eldhúspappír samanbrotnum á afgreiðsluborðið, opnaði hann, benti svo á og sagði "heldurðu að þetta sé ekki lús?". Blasir ekki bara við mér lús rétt við andlitið á mér og hún var alls ekki svo lítil, sást bara mjög vel. Ég þurfti á öllu mínu til að halda andlitinu, fékk alveg hroll upp og niður líkamann. Mér fannst þetta nú svoldið spes að koma bara með lúsina í apótekið. Ég brosti bara blítt og seldi henni lúsameðal og lúsakamb en mér klæjaði í hausnum það sem eftir var dags !!!

Í dag var ég í fyrsta skipti með kennslustund fyrir lyfjatækninema en það er partur af starfinu. Ég er búin að vera að deyja yfir þessu og með í maganum síðustu daga en þetta gekk bara ágætlega og nemarnir skildum alveg dönskuna mína. Ég er bara svo fegin að þetta er búið, það er alltaf erfitt að demba sér út í eitthvað nýtt í fyrsta skipti.

Jenni kláraði prófin í dag og honum gekk bara ágætlega held ég. Mikill léttir fyrir hann og nú er hann kominn í smá frí fram í næstu viku.

sunnudagur, janúar 06, 2008

Fjölskyldan við jólatréð á aðfangadagskvöld.


Kristján Ari flottur hjá pökkunum og jólatrénu.


Þá erum við komin aftur til Kaupmannahafnar eftir æðislegt jólafrí á Íslandi. Við vorum á ferðinni á milli Reykjavíkur og Borgarnes allan tíman og skiptum tímanum okkar þar á milli. Við náðum að hitta flesta vini okkar og fjölskyldu án þess að þetta yrði neitt span né kapphlaup við tímann. Höfðum það rosalega gott og gaman að hitta alla. Á aðfangadagskvöld vorum við í Borgarnesi, hjá ömmu og afa á jóladag og frænku hans Jenna á annan í jólum. 27. hittumst við svo Spatúlur með börnum heima hjá Þórey og það var mjög gaman. 29. átti ég svo ammæli og heimasætan er bara orðin þrjátíu OG eins. Svoldið skrýtið að vera orðin þrjátíu og eitthvað :) Fórum út að borða um kvöldið á Ban Thai með Önnu K, Valdísi, Jóa, Ólöfu, Hrafni og Stínu og kítkum svo í bæinn á eftir. 30. des vorum við svo öll í mat í Borgarnesi, ég, Jenni, Kristján Ari, Edda, Benni og þremenningarnir á Þórólfsgötu. Kvöldið endaði svo í leirspilinu og Trivial. Á gamlárskvöld vorum við öll hjá tengdó í Kópavoginum. Gunna og Steina snöruðu fram dýrindis máltíð, humarsúpu í forrétt, nautakjöti í aðalrétt og beilís frómas (veit ekki hvernig þetta er skrifað rétt) í eftirrétt. Litlu strákarnir voru í miklu fjöri en Kristjáni fannst sprengjurnar samt skemmtilegri úr fjarlægð og var bara inni hjá afa sínum meðan við sprengdum. Eftir miðnætti fórum við með Gunnu og Villa á Oliver og skemmtum okkur langt fram á nótt.

Á morgun byrjar svo alvara lífsins og ég viðurkenni að ég er með smá í maganum að fara í vinnuna. Það verður samt fínt að byrja í rútínunni aftur. Nú getur maður farið að hlakka til vorsins sem er svona næstum því á næsta leiti ;)